Pálmi Haraldsson þarf ekki að endurgreiða 4,2 milljarða króna

Pálmi Har­alds­son, Jóhannes Krist­ins­son og félag þeirra Matthews Holding S.A., sem er skráð í Lúx­em­borg, voru í gær sýkn­aðir í Hæsta­rétti að kröfu þrota­bús Fons um end­ur­greiðslu á 4.180 millj­ónum króna með drátt­ar­vöxtum frá 14. sept­em­ber 2007. Þrota­búið taldi ann­marka hafa verið á fram­kvæmd arð­greiðslu upp á þessa upp­hæð út úr Fons á árinu 2007, sem byggði á upp­lýs­ingum úr árs­reikn­ingi um 28,9 millj­arða króna hagn­aði félags­ins árið áður, þar sem fjár­hags­staða Fons hefði ekki boðið upp á slíka arð­greiðslu. Arðurinn var greiddur með því að Fons dró á lána­línu sína hjá Lands­bank­anum. Því var tekið lán fyrir henni og við það juk­ust skuldir Fons um þessa upp­hæð.

[caption id="attachment_13696" align="align­right" width="150"] Pálmi Har­alds­son[/caption]

Hæsti­réttur hafn­aði því og sagði að ekki verði talið „að slíkir ann­markar hafi verið á árs­reikn­ingnum 2006, sem sam­þykktur var á aðal­fund­inum 21. ágúst 2007, að hann hafi ekki getað verið við­hlít­andi grund­völlur undir arðsút­hlutun úr félag­inu. Að fram­an­greindu virtu verður heldur ekki talið að aðal­á­frýj­andi hafi leitt í ljós að svo miklum arði hafi verið úthlutað úr félag­inu að and­stætt hafi verið góðum rekstr­ar­venjum með til­liti til fjár­hags­stöðu sam­stæð­unnar“. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að sömu nið­ur­stöðu í fyrra­sumar.

Fons varð gjald­þrota snemma árs 2009. Kröfur í búið námu um 40 millj­örðum króna, þótt þær hafi ekki allar verið sam­þykktar. Skiptum á búinu er ekki lokið og því ekki ljóst hvað fæst upp í lýstar kröfur í búið.

Máttu greiða arðinn


Í dómi Hæsta­réttar segir, um ákvörð­un­ina um veit­ingu arð­greiðsl­una, að „Samkvæmt fund­ar­gerð frá aðal­fund­inum 21. ágúst 2007 sátu fund­inn stjórn félags­ins auk end­ur­skoð­anda þess og mun gagn­á­frýj­and­inn Pálmi hafa farið með atkvæði fyrir alla hluti í félag­inu. Á fund­inum var fært til bókar að ákveðið hefði verið að greiða arð að fjár­hæð 4.400.000.000 krónur. Ákvörð­unin var háð því skil­yrði að Lands­banki Íslands hf. sam­þykkti ráð­stöf­un­ina, en hann mun hafa verið helsti lán­ar­drott­inn félags­ins og við­skipta­banki þess. Í kjöl­farið féllst bank­inn á arð­greiðsl­una og fjár­magn­aði hana með láni til Fons hf. Var arð­greiðslan innt af hendi með fimm milli­færslum 14. sept­em­ber 2007 frá bank­anum inn á reikn­ing í Kaupt­hing Bank Luxembourg S.A.“

Hæsti­réttur kemst að þeirri nið­ur­stöðu að þótt ekki hafi komið fram með berum orðum í fund­ar­gerð fund­ar­ins þar sem arð­greiðslan var sam­þykkt „að til­laga þess efnis hafi verið gerð af stjórn félags­ins eða með sam­þykki hennar verður að leggja það til grund­vallar, enda sátu aðeins stjórn­ar­menn fund­inn að frá­töldum end­ur­skoð­anda félags­ins. Fór ákvörð­unin því ekki í bága við 1. mgr. 101. gr. laga nr. 2/1995. Þá gat engu breytt um lög­mæti ákvörð­unar um arðsút­hlutun þótt til­laga þar að lút­andi kæmi ekki fram í skýrslu stjórnar með árs­reikn­ingi 2006, sem lagður var fyrir fund­inn, eða að hún hafi ekki legið frammi á skrif­stofu félags­ins viku fyrir hann. Helgast það af því að þær form­reglur eru settar til að vernda hags­muni minni­hluta hlut­hafa en fyrir liggur að allt hlutafé í félag­inu var í eigu gagn­á­frýj­and­ans Matthews Holding S.A. Var því engum til að dreifa sem þessir ann­markar gátu bitnað á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár