Segjast heil í afstöðu sinni gagnvart lítilsvirðandi framkomu og ofbeldi gegn konum

Tveir stjórn­ar­þing­menn, sem kusu með til­lögu Mið­flokks um for­mennsku í umhverfis- og sam­göngu­nefnd, segj­ast leiða hjá sér sögu­skýr­ingar um aðdrag­anda þess. Þeir geti ekki tekið því með þögn að vera ásökuð um að vera ekki heil í afstöðu gagn­vart ofbeldi.

Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður Vinstri grænna, og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, harma það að Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, telji að þau séu ekki heil í afstöðu gagn­vart lít­ils­virð­andi fram­komu í garð kvenna og ofbeldi gegn þeim. Slíku sé ekki hægt að taka með þögn.

[links]Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem þing­menn­irnir tveir, sem báðir sitja í umhverfis- og sam­göngu­nefnd, hafa sent frá sér vegna greinar sem Helga Vala, sem situr einnig í nefnd­inni, birti á Kjarn­anum fyrir skemmstu. Í grein­inni sagði Helga Vala að svo virt­ist sem þing­heimi væri ómögu­legt að senda skýr skila­boð út til sam­fé­lags­ins um að kyn­bundið ofbeldi og áreiti sé ólíð­andi með öllu og setti það í sam­hengi við það að meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar hafi frekar stutt til­lögu Mið­flokks­ins um gera Jón Gunn­ars­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að for­manni hennar frekar en til­lögu minni­hlut­ans um að gera Hönnu Katrínu Frið­riks­son, þing­mann Við­reisnar, að for­manni hennar. „Af hverju völdu nefnd­ar­menn að styðja frekar til­lögu Mið­flokks í stað þess að standa við áður gerðan samn­ing sem og standa gegn ofbeldi?,“ spurði Helga Vala.

[adspot]Ari Trausti og Líneik Anna segja að þau kjósi að leiða hjá sér þá sögu­skýr­ingu sem Helga Vala setti fram í grein­inni, um „aðdrag­anda þess að óum­flýj­an­leg for­manns­skipti urðu í umhverfis- og sam­göngu­nefnd eftir að hún hafði verið óstarf­hæf um hríð.“ Það sé ein­fald­lega hluti af ábyrgð þeirra sem starfi í meiri­hluta á Alþingi að tryggja að störf þings­ins geti gengið eðli­lega fyrir sig og að því vinni þau.

„Hinu sem felst í skrifum þing­manns­ins, þegar vel er að gáð og við getum ekki tekið með þögn, eru þau skila­boð að við séum ekki heil í okkar afstöðu þegar kemur að lít­ils­virð­andi fram­komu í garð kvenna, hvað þá ofbeldi gegn þeim. Við hörmum það mjög að sam­starfs­maður okkar á þingi, Helga Vala Helga­dóttir, skuli reyna að setja okkur ómak­lega í slíkt ljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár