Segir Steingrím „beita bellibrögðum“ til að koma Klaustursmáli til siðanefndar

Gunnar Bragi Sveins­son segir að hann og aðrir úr Klaust­ur­mál­inu geti ekki bara vikið af þingi vegna þess að „ af því að póli­tískir and­stæð­ingar telja vont að vera nálægt okkur.“

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir að hann og aðrir þing­menn séu þjóð­kjörnir af „ákveðnu fólki“ til að sitja á Alþingi. „Ef það er þannig að ein­hver getur ekki starfað með okkur, alveg sama hvað það er, þá getum við ekki bara vikið út af þingi af því að póli­tískir and­stæð­ingar telja vont að vera nálægt okkur.“

Þetta kom fram í við­tali við hann og Bergþór Ólason í við­tali við Lindu Blöndal í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut á fimmtu­dags­kvöld þegar Gunnar Bragi ræddi hvort hann ætti að segja af sér eða ekki vegna Klaust­ur­máls­ins.

[adspot]Bergþór sagði í þætt­inum að það hafi komið upp í huga sinn að segja af sér en að hann hafi þó ekki dvalið lengi við þá hugsun.

Hann sé þrátt fyrir allt kos­inn af sínum kjós­endum. Gunnar Bragi sagði að í hans til­viki hafi alltaf legið ljóst fyrir að hann hafi ætlað að snúa til baka. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Gunnar Bragi sagði að þeir væru búnir að vera mjög auð­mjúkir vegna máls­ins. „Við erum búnir að biðj­ast afsök­unar[...] ef menn eru hins vegar ekki til­búnir að fyr­ir­gefa okkur þá er það þeirra mál. Við erum kjörnir af ákveðnum hópi fólks til að sinna störfum okkar og ég hef með­als ann­ars nýtt tím­ann til að tala við þetta fólk. Það er ein­róma áskorun þeirra að ég skuli aftur koma.“

[links]Báðir við­mæl­end­urnir sögðu tíma­setn­ingu end­ur­komu sinnar á Alþingi vera vegna þess að verið sé að reyna að koma máli þeirra til siða­nefndar með hætti sem þeir telji óboð­legan.

Gunnar Bragi sagði:„Síðan ger­ist það vit­an­lega að það eiga sér stað atburðir í þing­inu sem að við teljum að eigi sér fá dæmi ef nokkur þar sem for­seti Alþingis fer fram með slíkum hætti að í fyrsta lagi að reyna að breyta lögum eftir á.“

Hann telji að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sé að reyna að breyta lögum þannig að „hann gæti komið okkur með ein­hverjum belli­brögðum til þess­arar siða­nefndar. Fyrir okkur var eng­inn annar val­kostur heldur en að koma inn á þing og þá að reyna að verj­ast þessum fyr­ir­ætl­unum. Verjast for­seta Alþingis sem fer fram með mjög miklu offorsi í þessu máli.“

Gunnar Bragi sagði enn fremur að Stein­grímur J. virt­ist vera búinn að setja sér það heilaga mark­mið að málið skyldi fara til siða­nefndar með öllum ráðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár