Skuldabréfaeigendur WOW samþykkja breytingar á skilmálum

Stærsta fyr­ir­staðan fyrir því að Indigo Partners klári aðkomu sína að WOW air hefur verið rutt úr vegi. Skulda­bréfa­eig­endur hafa sam­þykkt að breyta skil­málum.

Skulda­bréfa­eig­endur WOW air hafa sam­þykkt að breyta skil­málum skulda­bréf­anna og liðkað þannig fyrir því að aðkoma Indigo Partners að rekstri WOW air geti átt sér stað. Frá þessu er greint á fjár­festa­síðu WOW air.

Í frétt­inni segir að nægi­legur fjöldi skulda­bréfa­eig­enda sem tóku þátt í 60 milljón dala útboði sem WOW air stóð fyrir í sept­em­ber hefði sam­þykkt breyt­ingar á skil­málum, en kosn­ingu á meðal þeirra lauk í gær.

Á meðal þeirra sem keyptu í útboð­inu í fyrra­haust var félagið sjálft, stofn­and­inn og aðal­eig­and­inn Skúli Mogensen og sjóðir á vegum banda­ríska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Eaton Vance.

Til greina kom að annað hvort að breyta kröfum skulda­bréfa­eig­end­anna í hlutafé áður en að Indigo Partners myndi ráð­ast í sína fjár­fest­ingu í WOW air, eða að end­ur­samið yrði um skil­mála með þeim hætti að þeir féllu frá breytirétti á skulda­bréf­unum yfir í hlutafé og færð­ust þar með aftar í kröfu­hafaröð­ina. Seinni kost­ur­inn var sam­þykktur, sem þýðir að þeir eiga mögu­leika á því að fá höf­uð­stól fjár­fest­ingar sinnar og vexti greidda. Skulda­bréfa­flokk­ur­inn verður auk þess afskráður úr kaup­höll.

Tilkynnt var um mögu­lega aðkomu Indigo Partners að WOW air í lok nóv­em­ber í fyrra. Greint hefur verið frá því að fjár­fest­ing Indigo í WOW air verði aðal­lega í formi tíu ára breyti­legs láns. Árlegir vextir verða greiddir í reiðufé kjósi Indigo að inn­heimta þá. Höf­uð­stóll láns­ins og ógreiddir vextir verða greið­an­legir þegar láns­tím­anum lýk­ur.

Indigo Partners mun eign­ast 49 pró­sent í WOW air gangi áformin eft­ir. Félagið getur hins vegar eign­ast stærri hlut ef það ákveður að breyta lánum sínum í nýtt hlutafé í sam­ræmi við ákvæði þeirra á láns­tím­an­um.

Því liggur ekki fyrir hver heild­ar­fjár­fest­ing Indigo Partners í WOW air verður né hversu stóran hluta félagið mun eiga í WOW air til fram­tíðar. Verði fjár­fest­ing Indigo Partners að veru­leika þá mun heildar fjár­fest­inga­upp­hæðin taka mið af fjár­þörf WOW air í þeim við­snún­ingi á rekstr­inum sem stefnt er að á næstu miss­er­um. Þetta sé í takt við þá lang­tíma­fjár­fest­inga­stefnu sem Indigo Partners hafi sýnt að félagið vinnur eftir þegar það hefur komið að rekstri flug­fé­laga. Það séu til að mynda 14 ár frá því að félagið fjár­festi í Wizz air, átta ár frá fjár­fest­ingu í Vol­aris og fimm ár frá því að fjár­fest var í Frontier Air­lines.

Miklar sviptingar

Líkt og áður sagði var til­kynnt um það í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins að Indigo Partners hefði náð sam­komu­lagi um fjár­fest­ingu í WOW air.

13. des­em­ber var til­kynnt að vélum félags­ins muni fækka enn frekar, og verði í nán­ustu fram­tíð ell­efu eftir að hafa verið 24 fyrir nokkrum vikum síð­an. Fjölda­upp­sagnir eru þegar hafnar hjá WOW air og hætt hefur verið við kostn­að­ar­söm flug, meðal ann­ars til Ind­lands, en jóm­frú­ar­ferð WOW air þangað var farin í byrjun des­em­ber 2018. Sam­kvæmt til­kynn­ingu verður síð­asta flug frá Nýju Delí 20. jan­úar næst­kom­andi og frá Los Ang­eles í Banda­ríkj­unum 14. jan­úar 2019.

Þann 14. des­em­ber var birt yfir­lýs­ing á vef WOW air þar sem kom fram að fjár­fest­ing Indigo Partners í félag­inu gæti verið upp á allt að 75 millj­ónir dala, um 9,4 millj­arða króna.

Þann 20. des­em­ber var greint frá því að félagið hefði selt flug­­­tíma sína á Gatwick flug­­velli í London í kjöl­far end­­ur­­skipu­lagn­ingar á rekstri félags­­ins. Hvorki kaup­verð né kaup­andi var gefið upp sam­­kvæmt til­­kynn­ingu þar sem um trún­­að­­ar­­sam­komu­lag er að ræða.

Því mun WOW air hætta að fljúga til Gatwick frá 31. mars næst­kom­andi og eftir það fljúga ein­­göngu um Stan­­sted flug­­­völl í borg­inni. Þá hefur félagið til­­kynnt um að það muni hefja aftur flug til Edin­­borgar frá og með jún­í­mán­uði 2019.

Í byrjun árs var greint frá því að WOW air hafi þurft að fella niður flug­­­ferðir til minnst sex flug­­valla vegna end­­ur­­skipu­lagn­ingar leiða­­kerfis og fækkun í flota. Þetta á við staði á borð við Los Ang­el­els, San Francisco, Nýju Del­í og Chicago en einnig hafa ein­staka flug til Kaup­­manna­hafn­­ar, ­­Mílanó og London verið felld nið­­ur. Ekki er vitað hversu margar ferðir hafa verið felldar niður í heild­ina.

WOW air tap­aði alls 33,6 millj­­­­ónum dala, sem jafn­­­­­­­gildir um 4,2 millj­­­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018. Á sama tíma­bili 2017 nam tap félags­­­­ins 13,5 millj­­­­ónum dala, jafn­­­­virði tæp­­­­lega 1,7 millj­­­­arða króna miðað við núver­andi gengi. EBITDA félags­­­­ins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 millj­­­­ónir dala fyrstu níu mán­uði árs­ins 2017 í að vera nei­­­­kvæð um 18,9 millj­­­­ónir dala í fyrra, sem er um 2,3 millj­­­­arða íslenskra króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár