Sigmundur Davíð og Gunnar Bragi mæta ekki á fundinn

Gunnar Bragi Sveins­son segir fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar vera hald­inn til að koma höggi á póli­tíska and­stæð­inga. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segir að eng­inn sið­ferð­is­legur grund­völlur sé fyrir þeirri umræðu sem fari fram á fund­inum.

Af fundi nefndarinnar sem nú stendur yfir.
Af fundi nefnd­ar­innar sem nú stendur yfir. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, mættu hvor­ugir á fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um sendi­herra­málið svo­kall­aða sem hald­inn var í dag.

[links]Í upp­hafi fundar voru lesnar yfir­lýs­ingar frá þeim báðum. Gunnar Bragi sagði í henni að til­efni fund­ar­ins væri ólög­mælt hljóð­ritun af ummælum sem hann hefði látið falla í trún­að­ar­spjalli á veit­inga­stað í borg­inni.

Hann hafi þegar á opin­berum vett­vangi sagt að þar hafi hann farið með rangt mál og við það væru engu að bæta. Gunnar Bragi sagði enn fremur að til fund­ar­ins væri boðað í þeim „ann­ar­lega til­gangi“ að koma höggi á póli­tíska and­stæð­inga.

[adspot]Í yfir­lýs­ingu Sig­mundar Davíðs sagði hann ófor­svar­an­legt hjá for­manni nefnd­ar­innar að halda fund um óljósar ásak­anir. Hann sagði enga við­hlít­andi rann­sókn hafa farið fram á því af hverju farið var í hljóð­upp­tök­urnar af við­ræð­unum á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber og hvort þær hafi verið klipptar til.

Því væri eng­inn sið­ferð­is­legur grund­völlur fyrir þeirri umræðu sem for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, Helga Vala Helga­dóttir, boðað til. Þess vegna myndi hann ekki mæta á fund­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár