Karl Gauti segir Ingu Sæland verja opinberu fé í laun fyrir nána fjölskyldumeðlimi

Karl Gauti Hjalta­son seg­ist oft hafa látið gagn­rýni sína á Ingu Sæland í ljós innan flokks áður en hún náð­ist á upp­töku á Klaust­ur­bar. Hann seg­ist ekki geta sætt sig við að opin­beru fé sé ráð­stafað til fjöl­skyldu­með­lima stjórn­mála­leið­toga.

Karl Gauti Hjalta­son, sem var rek­inn úr Flokk fólks­ins síðla árs í fyrra, segir að hann hafi marg­ít­rekað látið gagn­rýni sína á getu Ingu Sæland, for­mann flokks­ins, til að leiða Flokk fólks­ins í ljós, áður en að slík gagn­rýni náð­ist á upp­töku á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Það hafði hann gert beint við for­mann­inn, á vett­vangi þing­flokks og í stjórn Flokks fólks­ins, þar sem hann hafði verið kjör­inn með flestum atkvæðum allra stjórn­ar­manna á lands­fundi í sept­em­ber. „Ég tel ekki for­svar­an­legt að for­maður stjórn­mála­flokks sitji yfir fjár­reiðum hans með því að vera jafn­framt pró­kúru­hafi og gjald­keri flokks­ins. Þá get ég heldur ekki sætt mig við að opin­beru fé sé varið til launa­greiðslna í þágu nán­ustu fjöl­skyldu­með­lima stjórn­mála­leið­toga. Landslög kveða skýrt á um vand­aða með­ferð þeirra fjár­muna sem stjórn­mála­flokkar þiggja úr almanna­sjóðum og er mik­il­vægt að eftir þeim sé farið.“

Þetta kemur fram í grein sem Karl Gauti skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Þar minn­ist hann einnig á Klaust­ur­málið og seg­ist hafa setið „undir orð­ræðu sem spannst í hópi sam­starfs­manna og ratað hefur í fjöl­miðla. Ég hef beðist afsök­unar á þeim mis­tökum að sitja of lengi undir þessum umræðum.“

Flokkur fólks­ins fær um 45 millj­ónir króna á ári úr rík­is­sjóði eftir að fram­lög þaðan til stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á þingi voru aukin um 127 pró­sent fyrir rúmu ári síðan.

Telur sig ekki hafa sagt neitt siðferðislega ámælisvert

Karli Gauta og Ólafi Ísleifs­syni var vísað úr Flokki fólks­ins 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn eftir að þeir sátu á fund­inum á Klaust­ur­bar með þing­­mönnum Mið­­flokks­ins, þeim Sig­­mundi Dav­íð G­unn­laugs­­syni, Berg­þóri Óla­­syni, Gunn­­ari Braga Sveins­­syni og Önnu Kol­brúnu Árna­dótt­­ur þar sem ýmist afar niðr­andi ummæli voru látin falla um meðal ann­ars aðra stjórn­mála­menn, konur, sam­kyn­heigða og fatl­aða. Þeir sitja nú báðir sem óháðir þing­menn utan flokka.

Karl Gauti hafði áður sent frá sér til­kynn­ingu, þann 1. des­em­ber 2018, þar sem hann sagð­ist ekki hafa sagt neitt sið­ferð­is­lega ámæl­is­vert á fund­inum en að honum þyki leið­in­legt að hafa setið fund­inn á Klaustri of lengi. Auk þess hélt hann því þar fram að fjöl­miðlar hefðu haft rangt eftir honum af upp­tökum af fund­inum.

Í umfjöllun DV um Klaust­ur­fund­inn, þar sem Karl Gauti kom við sögu, sagði meðal ann­ars: „Þá bar Ingu Sæland oft á góma og hún sögð hafa „grenj­að“ sig inn á þing. Þá sagði Karl Gauti Hjalta­son þing­maður Flokks fólks­ins: „Ólafur er örugg­lega sam­mála mér að Inga Sæland getur þetta ekki.“

Þá hefur Karl Gauti haldið því fram að fjöl­miðlar hafi rang­lega eignað honum setn­ingu úr upp­tök­unni á Klaust­ur­bar. Þar á hann við frétt Stund­ar­innar þar sem Karl Gauti er sagður hafa kallað Eygló Harð­ar­dótt­ur, fyrr­ver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra „galna kerl­ing­ar­klessu.“ í sam­tali á Klaust­ur­bar þann 20. nóv­em­ber. Karl Gauti hefur sagt að ­fjöl­miðl­ar hafi farið manna­villt þar sem hann hafi hlustað á upp­tök­una sjálfur og telur að þetta séu ekki hans orð né hans rödd sem tali.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár