Framlag til stjórnarflokka hækkar um 195 milljónir – hinir fá 137 milljónir í viðbót

Framlag úr rík­is­sjóði til stjórn­mála­flokka var hækkað um 362 millj­ónir á nýsam­þykktum fjár­lögum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokkur lands­ins, fær 93 millj­ónir í hækkun. Flokk­arnir sem skrif­uðu ekki upp á við­bót­ina fá sam­tals 58 millj­ónir krónum meira.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun fá um 166 millj­ónir króna í fram­lag úr rík­is­sjóði á árinu 2018 og fær mest allra flokka. Vinstri græn munu fá um 111 millj­ónir króna og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 71 millj­ónir króna. Sam­an­lagt verða fram­lög til rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja því um 348 millj­óna króna fram­lag úr rík­is­sjóði á þessu ári til standa straum að starf­semi sinni, sam­kvæmt útreikn­ingum Kjarnans. Ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð í lok des­em­ber hefðu þeir fengið 195 millj­ónum krónum minna. Þeir fimm flokkar sem sitja í stjórn­ar­and­stöðu fá 300 millj­ónir króna sam­an­lagt sam­kvæmt sömu útreikn­ingum. Án við­bót­ar­fram­lags­ins hefðu þeir fengið 167 millj­ónum krónum minna.

[links]Líkt og Kjarninn greindi frá í gær þá var til­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­is­ins til stjórn­mála­flokka á árinu 2018 um 127 pró­sent sam­þykkt í fjár­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber. Framlög til stjórn­mála­flokka áttu að vera 286 millj­ónir króna en verða 648 millj­ónir króna.

Sjálfstæðisflokkurinn fær 93 milljónum meira

Ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð þá hefði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokkur lands­ins, fengið 73 millj­ónir króna. Þess í stað fær flokk­ur­inn um 166 millj­ónir króna, eða 93 millj­ónum krónum meira en hann hefði ann­ars fengið. Vinstri græn fá 111 millj­ónir króna en hefðu fengið 49 millj­ónir króna ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð en flokk­ur­inn fær nú 111 millj­ónir króna. Munurinn er 62 millj­ónir króna. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fær 70 millj­ónir króna en hefði fengið 31 milljón króna ef fram­lögin hefðu staðið óbreytt. Munurinn er 39 millj­ónir króna

[adspot]Sam­fylk­ingin er stærst stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Hún fær 80 millj­ónir króna en hefði átt að fá 35 millj­ónir króna ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð. Munurinn er 45 millj­ónir króna. Mið­flokk­ur­inn er fær nán­ast sama fram­lag og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, eða 71 milljón króna í stað 31 milljón króna sem hefði fallið honum í skaut ef fram­lag til hans hefði ekki verið hækkað. Munurinn er 40 millj­ónir króna. Viðreisn hefði fengið 20 millj­ónir króna ef fram­lagið hefði ekki verið hækkað en fá nú 44 millj­ónir króna. Munurinn er 24 millj­ónir króna.

Tveir flokkar sem eiga sæti á Alþingi skrif­uðu sig ekki á sam­eig­in­legt erindi sem sent var til fjár­laga­nefndar Alþingis 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem óskað var eftir við­bót­ar­fram­lag­inu. Þeir eru Píratar og Flokkur fólks­ins. Innra starf þeirra flokka nýtur samt sem áður góðs af hækk­un­inni. Píratar munu fá 60 millj­ónir króna í stað 27, sem er hækkun upp á 33 millj­ónir króna. Flokkur fólks­ins, sem náði í fyrsta sinn kjöri til Alþingis í kosn­ing­unum í haust, fær 45 millj­ónir króna en hefði fengið 20 millj­ónir króna ef ekki væri fyrir við­bót­ar­fram­lagið. Það er hækkun upp á 25 millj­ónir króna.

Óskuðu eftir „leiðréttingu“

Full­trú­arnir sex sem sendu hið sam­eig­in­lega erindi eru Ásgeir Run­­ólfs­­son, full­­trúi Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, Birna Þór­­ar­ins­dótt­ir, fram­­kvæmda­­stjóri Við­reisn­­­ar, Björg Eva Erlends­dótt­ir, fram­­kvæmda­­stjóri Vinstri grænna, Einar Gunnar Ein­­ar­s­­son, fram­­kvæmda­­stjóri Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, Svanur Guð­­munds­­son, full­­trúi Mið­­flokks­ins, og Þórður Þór­­ar­ins­­son, fram­­kvæmda­­stjóri Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins. Líkt og áður sagði skrif­uðu hvorki Píratar né Flokkur fólks­ins sig á erind­ið.

Erindið bar yfir­­­skrift­ina „Nauð­­syn­­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­­­mála­­sam­taka“. Í því er farið fram á að fram­lög til stjórn­­­mála­­flokka verði „leið­rétt“.

Í grein­­ar­­gerð sem fylgdi erind­inu segir að sú upp­­hæð sem stjórn­­­mála­­flokkum sé ætluð á fjár­­lögum hafi lækkað um helm­ing á raun­virði frá árinu 2008. Nú eigi átta flokkar full­­trúa á Alþingi. „Hver þeirra stendur fyrir eigin rekstri og á að reka virkt og ábyrgt stjórn­­­mála­­starf um allt land, jafnt á sviði lands­­mála og sveit­­ar­­stjórna, árið um kring.

Til sam­an­­burðar má nefna að dóms­­mála­ráðu­­neytið hefur sagt að kostn­aður vegna alþing­is­­kosn­­ing­anna á síð­­asta ári hafi verið rétt tæpar 350 millj­­ón­ir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svip­aður í ár. Stjórn­­­mála­­sam­tök starfa í þágu almanna­hags­muna en hafa hvergi nærri bol­­magn á við helstu hags­muna­­sam­tök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfs­­mönnum í dag og sam­tals eru 13 fast­ráðnir starfs­­menn hjá þeim átta flokkum sem eiga full­­trúa á Alþingi.

Til sam­an­­burðar má geta að Sam­tök atvinn­u­lífs­ins eru með 30 starfs­­menn, Sam­tök iðn­­að­­ar­ins 16, Sam­tök fyr­ir­tækja í sjá­v­­­ar­út­­­vegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfs­­menn. Í þessu umhverfi er stuðn­­ingur við nýsköp­un, þró­un, sér­­fræð­i­þekk­ingu og alþjóða­­tengsl eng­inn inni í stjórn­­­mála­­sam­tök­un­um; endar ná ekki saman til að sinna grunn­þörfum í rekstri stjórn­­­mála­­flokka og að upp­­­fylla mark­mið lag­anna. Lýð­ræðið á Íslandi á betra skil­ið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár