Laun ráðherra og aðstoðarmanna 461 milljón í ár

Kostn­aður vegna launa ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra hefur auk­ist um 82 pró­sent á nokkrum árum. Hækkanir Kjara­ráðs á launum þeirra og fjölgun aðstoð­ar­manna eru ástæðan. Hækkun á fram­lögum til stjórn­mála­flokka um 127 pró­sent er í fjár­lögum.

Alls eru ellefu ráðherrar í ríkisstjórninni. Hver þeirra má ráða tvo aðstoðarmenn auk þess sem stjórnin má bæta þremur til viðbótar við þann fjölda.
Alls eru ell­efu ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni. Hver þeirra má ráða tvo aðstoð­ar­menn auk þess sem stjórnin má bæta þremur til við­bótar við þann fjölda. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rekstur rík­is­stjórnar Íslands mun kosta 461 milljón króna á þessu ári. Undir mála­flokk­inn falla laun ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra. Kostn­aður vegna þessa rekst­urs hefur auk­ist um 208 millj­ónir króna frá árinu 2012. Þegar tekið hefur verið til­lit til verð­bólgu þá nemur hækk­unin samt sem áður um 180 millj­ónum króna. Þetta kemur fram í fjár­lögum árs­ins 2018, sem sam­þykkt voru skömmu fyrir ára­mót.

Alls eru ell­efu ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands. Hver og einn þeirra má vera með tvo aðstoð­ar­menn auk þess sem heim­ild er til staðar sam­kvæmt ákvörðun rík­is­stjórnar að ráða þrjá til við­bótar ef þörf krefur. Einn þeirra er sér­stakur upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar sem starfar innan for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­ar­manna­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­ast um að ræða nán­ustu sam­starfs­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

[adspot]Laun bæði ráð­herra og aðstoð­ar­manna hafa hækkað umtals­vert á síð­ustu árum vegna ákvarð­ana Kjara­ráðs. Í nóv­em­ber 2015 hækk­aði Kjararáð til að mynda laun ráð­herra um 9,3 pró­sent. Árið síðar, á kjör­dag 2016, voru laun þeirra síðan hækkuð um 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun for­sæt­is­ráð­herra 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­arra ráð­herra 1.826.273 krónur á mán­uði.

[box]Aðstoð­ar­menn ráð­herra fengu líka dug­lega hækkun sum­arið 2016, þegar laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum voru hækkuð um allt að 35 pró­sent. Laun aðstoð­ar­manna mið­ast við laun skrif­stofu­stjór­anna. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­ar­manna um 1,2 millj­ónir króna á mán­uði. Aðstoð­ar­menn ráð­herra eru sem stendur 15 tals­ins, að með­töldum upp­lýs­inga full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar. Enn er svig­rúm til að ráða allt að tíu aðstoð­ar­menn til við­bótar.

Framlög til stjórnmálaflokka hækka um 127 prósent

Í fjár­lög­unum var til­laga full­trúa sex flokka sem eiga sæti á Alþingi um að hækka fram­lag rík­is­ins til stjórn­mála­flokka á árinu 2018 úr 286 millj­ónum króna í 648 millj­ónir króna. Fram­lagið eykst því um 362 millj­ónir króna eða um 127 pró­sent.

Full­trú­arnir sex sendu sam­eig­in­legt erindi til fjár­laga­nefnd Alþingis 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem óskað var eftir við­bót­ar­fram­lag­inu.

Full­trú­arnir sex eru Ásgeir Run­ólfs­son, full­trúi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Birna Þór­ar­ins­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Við­reisn­ar, Björg Eva Erlends­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Vinstri grænna, Einar Gunnar Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, Svanur Guð­munds­son, full­trúi Mið­flokks­ins, og Þórður Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hvorki Píratar né Flokkur fólks­ins skrif­uðu sig á erind­ið.

Erindið bar yfir­skrift­ina „Nauð­syn­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­mála­sam­taka“. Í því er farið fram á að fram­lög til stjórn­mála­flokka verði „leið­rétt“.

Í grein­ar­gerð sem fylgdi erind­inu segir að sú upp­hæð sem stjórn­mála­flokkum sé ætluð á fjár­lögum hafi lækkað um helm­ing á raun­virði frá árinu 2008. Nú eigi átta flokkar full­trúa á Alþingi. „Hver þeirra stendur fyrir eigin rekstri og á að reka virkt og ábyrgt stjórn­mála­starf um allt land, jafnt á sviði lands­mála og sveit­ar­stjórna, árið um kring.

[links]Til sam­an­burðar má nefna að dóms­mála­ráðu­neytið hefur sagt að kostn­aður vegna alþing­is­kosn­ing­anna á síð­asta ári hafi verið rétt tæpar 350 millj­ón­ir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svip­aður í ár. Stjórn­mála­sam­tök starfa í þágu almanna­hags­muna en hafa hvergi nærri bol­magn á við helstu hags­muna­sam­tök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfs­mönnum í dag og sam­tals eru 13 fast­ráðnir starfs­menn hjá þeim átta flokkum sem eiga full­trúa á Alþingi.

Til sam­an­burðar má geta að Sam­tök atvinnu­lífs­ins eru með 30 starfs­menn, Sam­tök iðn­að­ar­ins 16, Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfs­menn. Í þessu umhverfi er stuðn­ingur við nýsköp­un, þró­un, sér­fræði­þekk­ingu og alþjóða­tengsl eng­inn inni í stjórn­mála­sam­tök­un­um; endar ná ekki saman til að sinna grunn­þörfum í rekstri stjórn­mála­flokka og að upp­fylla mark­mið lag­anna. Lýð­ræðið á Íslandi á betra skil­ið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ríkisstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár