Þingmenn gagnrýna seinagang í svörum ráðherra

Þingmenn Mið­flokks, Pírata, Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna gagn­rýndu seina­gang í svörum ráð­herra í umræðum um fund­ar­stjórn for­seta í dag.

Sex þing­menn nýttu fund­ar­stjórn á Alþingi í dag til þess að gagn­rýna seina­gang svara frá ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar. Þing­menn­irnir eru þing­menn Mið­flokks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar, Pírata, auk Vinstri grænna.

Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði með ólík­indum hversu langan tíma ráð­herrar taki til að svara fyr­ir­spurnum þing­manna. Oddný bíður svara fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn sem hún lagði fram 29. jan­úar, auk ann­arar fyr­ir­spurnar frá því í byrjun apríl. „Það er ekki hægt, herra for­seti, að sætta sig við þennan seina­gang og ég vil biðja for­seta að grennsl­ast líka fyrir um þessar fyr­ir­spurnir.“

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, bað um að fyr­ir­spurnum sínum yrði svarað áður en þingi lyki, en hann bíður enn svara tveggja fyr­ir­spurna.

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, sagði: „Ég kem bara hér upp svo það komi ekki út eins og ein­hver gagn­rýni stjórn­ar­and­stöð­unnar ein­göngu því þetta er sam­eig­in­legt hags­muna­mál þings­ins alls.“ Hann sagði enn fremur að það væri „ótækt að fram­kvæmd­ar­valdið og ein­staka ráð­herrar, sama hvar í flokki þeir eru, sinni ekki sinni lög­bundnu skyldu að svara þing­inu innan þess frests sem þeim er gef­inn [...] Þegar þingið spyr, þá eiga ráð­herrar að svara.“

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tók undir mál fyrri þing­manna. Hún lagði fyr­ir­spurn til dóms­mála­ráð­herra í mars síð­ast­liðnum um stöðu Lands­réttar, en hefur enn ekki fengið svör.

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, ýtti á eftir skýrslu úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sem sam­þykkt var fyrir 20 vikum en frest­ur­inn er 10 vikur. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sagði með­al­svar fyr­ir­spurna vera 35 dagar, ekki 15 líkt og reglur segja til um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ríkisstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár