Flest frumvörp frá Bjarna og Ólöfu

Kjarninn rýndi í töl­fræði á bak við þing­störfin og komst meðal ann­ars að því að Bjarni Bene­dikts­son og Ólöf Nordal lögðu fram flest frum­vörp á nýliðnu þingi.

Rúmlega þrjú af hverjum fjórum frum­vörpum rík­is­stjórn­ar­innar fóru í gegnum Alþingi og urðu að lögum á nýliðnu þingi, eða 76% frum­varpa. Þetta er betra hlut­fall en hina tvo þing­vet­urna, þegar hlut­föllin voru 73% og 67%. Á fyrsta þingi þess­arar rík­is­stjórnar, sum­ar­þingi 2013, voru öll 10 frum­vörpin sem lögð voru fram sam­þykkt.

Alls lagði rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks fram 110 frum­vörp á nýliðnu þingi. 84 þeirra urðu að lögum, en sjö þeirra komust aldrei til umræðu á þing­inu. 13 frum­vörp voru enn inni í nefndum þegar þingi lauk, fimm biðu ann­arrar umræðu og eitt beið þriðju og síð­ustu umræðu.

Rík­is­stjórnin tók til starfa um mitt ár 2013 og lagði á þessum rúmu þremur árum fram 353 frum­vörp til laga. 258 þeirra urðu að lögum, en taka verður fram að séu frum­vörp, sem ekki ná fram að ganga á þingi lögð fram aftur telj­ast þau aftur á næsta þingi sem þau koma fram á. Til sam­an­burðar lagði síð­asta rík­is­stjórn fram 598 frum­vörp á þeim fjórum árum sem hún starf­aði.

Kjarninn ákvað líka að fara yfir töl­fræði ráð­herr­anna á kjör­tíma­bil­inu sem er að verða búið, hversu mörg frum­vörp og þings­á­lykt­un­ar­til­lögur þau hafa lagt fram á hverju ári og til sam­ans.

Forsætisráðherra

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son lagði fram tvö frum­vörp til laga á þessu þingi, á meðan hann var for­sæt­is­ráð­herra. Frumvarp hans á breyt­ingum á lögum um þjóð­fán­ann og skjald­ar­merkið varð að lögum, en ekki frum­varp hans um menn­ing­arminjar, sem átti að búa til þjóð­minja­stofnun. Á þing­inu þar á undan lagði hann fram fjögur frum­vörp, en þrjú þeirra urðu að lögum. Veturinn 2013-2014 lagði hann fram eitt frum­varp sem ekki varð að lögum og sum­arið 2013 varð eina frum­varpið sem hann lagði fram að lögum. Hann lagði því fram átta frum­vörp sem for­sæt­is­ráð­herra. Á sama tíma­bili lagði hann fram eina þings­á­lykt­un­ar­til­lögu, fyrir utan til­lögur um frestun á fundum Alþingis, sem alltaf eru bornar fram af for­sæt­is­ráð­herra.

Utanríkisráðherra

Gunnar Bragi Sveins­son var lengst af utan­rík­is­ráð­herra, eða þar til í byrjun apríl á þessu ári. Hann lagði fram tvö frum­vörp á nýliðnu þingi, og Lilja Alfreðs­dóttir, sem tók við af honum, lagði fram eitt. Árið á undan lagði Gunnar Bragi fram þrjú frum­vörp, og eitt árið þar á undan. Samtals komu því sjö frum­vörp frá utan­rík­is­ráð­herra. Mörg mál sem heyra undir utan­rík­is­ráð­herra eru lögð fram í formi þings­á­lykt­un­ar­til­laga, til að mynda ákvarð­anir EES-nefnd­ar­innar. Á þessu kjör­tíma­bili voru lagðar fram 57 þings­á­lykt­un­ar­til­lögur af utan­rík­is­ráð­herra.

Félags- og húsnæðismálaráðherra

Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra lagði fram sjö frum­vörp á þing­inu sem var að klár­ast. Fimm þeirra urðu að lögum. Á síð­asta þingi lagði hún fram þrettán frum­vörp og vet­ur­inn 2013-2014 lagði hún fram tólf frum­vörp. Eitt frum­varp frá henni kom fram og var sam­þykkt á sum­ar­þing­inu 2013. 33 frum­vörp komu því frá Eygló á kjör­tíma­bil­inu. Eygló lagði fram þrjár þings­á­lykt­un­ar­til­lögur á þessu kjör­tíma­bili, allar á nýliðnu þingi.

Fjármálaráðherra

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra lagði fram 30 frum­vörp til laga á þing­inu sem lauk í síð­ustu viku. 24 þeirra urðu að lögum. Hann lagði fram flest frum­vörp allra ráð­herra. Á síð­asta þingi lagði hann fram 20 frum­vörp og vet­ur­inn á undan því voru þau 26 tals­ins. Þrjú frum­vörp komu frá honum á sum­ar­þing­inu eftir kosn­ing­arnar 2013, sam­tals 79 frum­vörp. Þrjár þings­á­lykt­un­ar­til­lögur hafa komið frá honum á kjör­tíma­bil­inu.

Heilbrigðisráðherra

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra lagði fram sjö frum­vörp á þessu þingi, og sama fjölda frum­varpa þing­vet­urna tvo þar á undan. Samtals gera það 21 frum­vörp. Tvær þings­á­lykt­un­ar­til­lögur hafa komið frá Krist­jáni á þessu kjör­tíma­bili, báðar á nýliðnu þingi.

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra

Átta frum­vörp komu frá Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra á þing­inu sem var að ljúka. Veturinn 2014-2015 lagði hún fram sextán frum­vörp, og þar á undan fjórtán frum­vörp. Þann vetur komst lít­ill hluti hennar mála í gegnum þingið, en aðeins fjögur af fjórtán frum­vörpum urðu að lögum. Hún lagði því fram 38 frum­vörp í heild­ina. Ragn­heiður Elín hefur lagt fram þrjár þings­á­lykt­un­ar­til­lögur á kjör­tíma­bil­inu.

Innanríkisráðherra

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir var inn­an­rík­is­ráð­herra fyrst um sinn í þess­ari rík­is­stjórn, en Ólöf Nordal tók við starf­inu í lok árs 2014. Hanna Birna lagði fram eitt frum­varp á sum­ar­þing­inu 2013 og 23 þing­vet­ur­inn 2013-2014. Veturinn 2014-2015 lögðu þær Hanna Birna og Ólöf fram 22 frum­vörp til laga og síð­ast­liðið ár lagði Ólöf fram 28 frum­vörp, en 22 þeirra urðu að lögum. 74 frum­vörp alls. Fjórar þings­á­lykt­un­ar­til­lögur komu frá inn­an­rík­is­ráð­herr­unum þetta kjör­tíma­bil.

Menntamálaráðherra

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra lagði fram sjö frum­vörp til laga á þessu þingi. Öll voru sam­þykkt nema það stærsta, umfangs­miklar breyt­ingar á Lána­sjóði íslenskra náms­manna og náms­lána­kerf­inu. Veturinn 2014-2015 lagði Illugi fram sjö frum­vörp, og 2013-2014 voru þau fjögur tals­ins. Eitt frum­varp hans kom fram á sum­ar­þing­inu 2013, og það var sam­þykkt. Þetta gera 19 frum­vörp. Hann hefur ekki lagt fram neina þings­á­lykt­un­ar­til­lögu á kjör­tíma­bil­inu.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Sigurður Ingi Jóhanns­son var lengst af ráð­herra sjáv­ar­út­vegs og land­bún­aðar, þar til Gunnar Bragi Sveins­son tók við emb­ætt­inu þegar Sigurður Ingi varð for­sæt­is­ráð­herra í byrjun apríl síð­ast­lið­ins. Á þing­vetr­inum sem var að ljúka lögðu þeir fram sex frum­vörp til laga, það þekktasta og umfangs­mesta eru búvöru­lögin. 2014-2015 lagði Sigurður Ingi fram fjórtán frum­vörp, og þrettán árið þar á undan. Þrjú frum­vörp komu frá honum og voru sam­þykkt á sum­ar­þing­inu 2013, sem öll vörð­uðu breyt­ing­arnar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu. Það eru sam­tals 36 frum­vörp. Tvær þings­á­lykt­un­ar­til­lögur hafa komið frá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra á kjör­tíma­bil­inu.

Umhverfisráðherra

Sigrún Magn­ús­dóttir varð umhverf­is­ráð­herra varð umhverf­is­ráð­herra árið 2014, eftir að Sigurður Ingi Jóhanns­son hafði verið umhverf­is­ráð­herra sam­hliða öðrum ráð­herra­emb­ættum sínum í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins. Ekkert frum­varp kom fram frá umhverf­is­ráð­herra á sum­ar­þing­inu 2013, en vet­ur­inn 2013 til 2014 voru níu frum­vörp lögð fram. Ellefu frum­vörp komu frá Sigrúnu vet­ur­inn 2014-2015, og á nýliðnu þingi voru þau tólf tals­ins. 32 frum­vörp komu því frá umhverf­is­ráð­herra þessi ár. Fimm þings­á­lykt­un­ar­til­lögur komu úr umhverf­is­ráðu­neyt­inu á kjör­tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ríkisstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár