Frestur ríkisstjórnarinnar að renna út

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa lagt fram 45 pró­sent þeirra frum­varpa sem þeir boð­uðu með þing­mála­skrá í upp­hafi nýs þings. Fram­lagn­ing­ar­frestur nýrra mála rennur út um mán­að­ar­mót.

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa lagt fram 45 pró­sent þeirra frum­varpa sem þeir boð­uðu með þing­mála­skrá í upp­hafi nýs þings. Fram­lagn­ing­ar­frestur nýrra mála rennur út um mán­að­ar­mótin en síð­asti þing­fund­ar­dagur er í dag.

Eftir fram­lagn­ing­ar­frest þar að leita afbrigða til að leggja fram ný mál. Tveir þriðju þing­manna þurfa að sam­þykkja afbrigði, en rík­is­stjórnin hefur stuðn­ing 35 þing­manna af 63, ef Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jónsson, þing­menn Vinstri grænna eru talin með. Þrátt fyrir að hafa ekki stutt myndun núver­andi rík­is­stjórn­ar­innar hafa þau hingað til stutt öll mál rík­is­stjórn­ar­innar, en studdu þó vantraut­s­til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar gegn Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra.

Í mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar eru boðuð 110 frum­vörp á þessu þingi, auk fjölda þings­á­lykt­un­ar­til­lagna og reglu­gerða­breyt­inga. Alls hafa 50 frum­vörp komið frá rík­is­stjórn­inni það sem af er þessu þingi.

Sem dæmi um frum­vörp sem beðið er eftir er breyt­ing á lögum um per­sónu­vernd, sem inn­leiðir lög­gjöf Evr­ópu­þings­ins og mun koma til fram­kvæmda þann 25. maí. Um er að ræða umfangs­mestu breyt­ingar sem gerðar hafa verið á per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf­inni í tvo ára­tugi. Einnig einnig er ann­ars frum­varps frá dóms­mála­ráð­herra beðið en það snýr að laga­breyt­ingum vegna upp­reist æru máls­ins svo­kall­aða. Boðað hefur verið frum­varp til breyt­inga á ýmsum lögum, vegna þeirra breyt­inga sem gerðar voru á almennum hegn­ing­ar­lögum við lok síð­asta þings, sem heim­il­uðu for­seta Íslands til að veita manni, sem fengið hefur refsi­dóm sem hefur í för með sér flekkun mann­orðs, upp­reist æru.

Að auki eru stór mál, sem þó eru ekki frum­vörp, ókomin. Þar má helst nefna fjár­mála­á­ætlun fjár­mála­ráð­herra, sem á lögum sam­kvæmt að leggja fram sem þings­á­lyktun fyrir 1. apríl ár hvert. Ekki er búist við því að áætl­unin komi fyrir þingið fyrir þann tíma og þarf því lík­leg­ast að taka hana fyrir með afbrigðum. Fjár­mála­á­ætlun er byggð á fjár­mála­stefnu hins opin­bera, grunn­gildum hennar og skil­yrðum. Hún felur í sér ítar­lega útfærslu á mark­miðum sem sett eru fram í þeirri stefnu, dýpkar nánar mark­mið fjár­mála­stefnu og greinir hvernig þeim verði náð frá ári til árs. Markmið með fjár­mála­á­ætl­un­inni er að útfæra mark­mið um tekjur og gjöld hins opin­bera og þróun þeirra.

Að auki sam­göngu­á­ætlun, sem ráð­herra boð­aði að yrði lögð fyrir þingið í febr­úar. Ekki er þó búist við áætl­un­inni frá sam­göngu­ráð­herra fyrr en í haust. Þar er um að ræða ann­ars vegar til­laga til þings­á­lykt­unar að nýrri fjög­urra ára sam­göngu­á­ætlun fyrir árin 2018 til 2021 og hins vegar til tólf ára fyrir árin 2018 til 2029. Sam­göngu­á­ætlun tekur til fjár­öfl­unar og útgjalda til allra greina sam­gangna, þ.e. flug­mála, vega­mála og sigl­inga­mála, þ.m.t. almenn­ings­sam­gangna, hafna­mála, sjó­varna, örygg­is­mála og umhverf­is­mála sam­göngu­greina. Þar skal skil­greina það grunn­kerfi sem ætlað er að bera meg­in­þunga sam­gangna og gera grein fyrir ástandi og horfum í sam­göngum í land­inu. Við gerð sam­göngu­á­ætl­unar skal m.a. byggja á þeim meg­in­mark­miðum að sam­göngur séu greiðar, hag­kvæmar, öruggar og umhverf­is­lega sjálf­bærar auk þess sem þær stuðli að jákvæðri byggða­þróun.

[links]Þingmenn hafa kvartað reglu­lega yfir of fáum málum frá rík­is­stjórn­inni. Í lok febr­úar sagði Þor­steinn Víglunds­son þing­maður Við­reisnar svo lítið að gera hjá þing­inu að „ef við værum í fisk­vinnslu væri senni­lega búið að senda okkur heim vegna hrá­efn­is­skorts.“ Þor­steinn sagði fá mál á dag­skrá og þau væru ýmist smá­vægi­legar lag­fræð­ingar eða end­ur­flutt mál nær óbreytt frá fyrri rík­is­stjórn.

Athygli vekur að Lilja Alfreðs­dóttir hefur ekki lagt fram eitt frum­varp af þeim sem fimm sem þing­mála­skráin gerir ráð fyrir frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Hún hefur þó lagt fram frum­varp um afnám virð­is­auka­skatts á bækur. Þá hefur Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, ekki lagt eitt frum­varp fyrir þingið, en þing­mála­skráin gerir hins vegar aðeins ráð fyrir tveimur málum frá honum, en hins vegar gríð­ar­legum fjölda þings­á­lykt­un­ar­til­lag­ana vegna Evr­óputil­skip­ana. Guð­laugur hefur lagt fram fimm þings­á­lykt­un­ar­til­lögur það sem af er þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ríkisstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár