Þingmenn fari heim vegna „hráefnisskorts“

Þor­steinn Víglunds­son þing­maður Við­reisnar kvart­aði í dag yfir því hversu fá mál kæmu frá rík­is­stjórn­inni. Framundan væri hálfs mán­aðar páska­leyfi og þingið færi snemma í sum­ar­frí vegna kosn­inga.

Þorsteinn Víglundsson þingmaður Viðreisnar.
Þor­steinn Víglunds­son þing­maður Við­reisnar.

Þor­steinn Víglunds­son þing­maður Við­reisnar sagði dag­skrá þings­ins þessa vik­una ekki upp á marga fiska. Eig­in­lega ekk­ert væri á dag­skrá af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar. „Ef við værum í fisk­vinnslu væri senni­lega búið að senda okkur heim vegna hrá­efn­is­skorts.“

Hann sagði þau fáu mál sem væru á dag­skránni séu ýmist smá­vægi­legar lag­fær­ingar eða end­ur­flutt mál nær óbreytt frá fyrri rík­is­stjórn.

Mál­efna­skrá rík­is­stjórn­ar­innar gerir ráð fyrir að búið verði að leggja fram 86 frum­vörp eða þings­á­lykt­un­ar­til­lögur í lok febr­úar. Þor­steinn sagði málin frá rík­is­stjórn­inni nú orðin um 30, þegar skammt væri eftir af febr­ú­ar­mán­uði. Tveir af þeim flokkum sem nú sætu í rík­is­stjórn hafi gagn­rýnt mjög ött­ul­lega síð­ustu rík­is­stjórn fyrir verk­leysi á fyrstu dögum hennar, þó að hún hefði á sama tíma verið búin að leggja fram um 60 mál.

„Mér þykir þetta verk­leysi rík­is­stjórn­ar­innar vera farið að verða heldur vand­ræða­legt,“ sagði Þor­steinn og benti á að vegna sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga í vor færi þingið óvenju­snemma heim, auk þess sem framundan væri hálfs mán­aðar páska­leyfi. „Það er ekki verið að ætla þing­inu mjög langan tíma til að vinna þau 110 mál sem enn eru ókomin, sam­kvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta finnst mér ekki vinnu­brögð til fyr­ir­myndar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár