Karolina Fund: Stuttmynd um gróf mannréttindabrot í Tyrklandi

Kvik­myndin Islandia er byggð á sögu Eydísar Eirar Brynju- Björns­dóttur. Söfnun fyrir dreif­ingu hennar stendur yfir á Karolina Fund.

Eydís Eir Brynju-Björns­dóttir er hand­rits­höf­undur og leik­stjóri. Hún skrif­aði hand­rit af stutt­mynd sem er byggð á hennar eigin reynslu, þegar hún upp­lifði gróf mann­rétt­inda­brot í Tyrk­landi. Starfs­maður á hót­eli sem Eydís dvaldi á braust inn á her­bergi hennar um miðja nótt og braut á henni. Í kjöl­farið var hún kærð fyrir skemmd­ar­verk á hót­el­inu og færð í fang­elsi.

Myndin var tekin upp á Spáni en Eydís má ekki stíga fæti aftur inn fyrir landa­mæri Tyrk­lands. Myndin þráir nú áhorf­endur og söfnun hefur farið af stað fyrir áfram­hald­andi dreif­ingu hennar en 20% af söfn­un­inni mun renna til Elfu­sjóðs sem aðstoðar konur að leita réttar síns í ofbeld­is­málum hér á Íslandi sem Sigrún Jóhanns­dóttir hér­aðs­dóms­lög­maður stendur fyrir.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Hug­myndin af mynd­inni vakn­aði eftir ákveðna úrvinnslu og skrif um það sem gerð­ist. Það kom svona „aha” augna­blik þegar ég var að skoða skrifin mín, um þær mann­eskjur sem ég hitti í þessum rús­sí­bana, atvik sem voru lyg­inni lík­ust og hug­ar­á­stand mitt þegar ég hélt ég myndi ekki lifa af. Þetta var auð­vitað fast í mér lengi á eftir.

[adspot]Ég hafði ekki verið tengd kvik­mynda­gerð lengi, en ég vissi alltaf að ég ætti heima þar. Ég ákvað því bara að breyta þess­ari þján­ingu minni í lista­verk, eins og alvöru lista­menn gera. Þetta var held ég óum­flýj­an­legt, hvernig sem þú tjáir þinn sárs­auka, verður þú að gera það á end­anum. Ég verð að við­ur­kenna þetta er stór saga sem erfitt er að setja í litlar 20 mín­útur, en þetta er mitt tján­ing­ar­form, í bili.

Eins og staðan er núna hjá okkur fór allt okkar fjár­magn í fram­leiðsl­una og þess vegna ákváðum við að fara þessa leið, þar sem það var tíma­bært að dreifa sög­unni almenni­lega og af fullum krafti. Það er mik­ill plús fyrir mig, eða ég er að átta mig akkúrat á þessu augna­bliki að það er mik­il­vægt fyrir mig að ræða sög­una opin­ber­lega. Því það er auð­vitað engu líkt að geyma sögu eins og þessa inn í sér. Eins og Maya Angelou sagði „There is no grea­ter agony than bear­ing an untold story inside you”.

Ég veit að margir fara þessa leið til að fjár­magna útgáfu list­rænna verk­efna sinna. Eins og flestir vita þá er ekki arð­bært að gera stutt­myndir og ég held við höfum gefið allt í þetta, blóð, svita, tár og okkar eigin laun. Þess vegna er okkur mik­il­vægt að fá sem flesta áhorf­endur! Enginn til­gangur að gera kvik­mynd ef eng­inn fær að sjá hana. Það eru margir að biðja um að fá að sjá mynd­ina, en þetta er einmitt kjörið tæki­færi fyrir þá að fá hana sem gjöf og um leið styðja við dreif­ingu hennar. Það er mögu­leiki í söfn­un­inni að styrkja og fá hlekk á mynd­ina og boð á frum­sýn­ing­una ef það vill það frekar sjá hana á stóru tjaldi með góðu hljóði sem ég mæli frekar með.“

Stutt­myndir eru öðru­vísi en stærri kvik­myndir því þær mega ekki fara í almenna sýn­ingu fyrr en þær hafa ferð­ast ákveðin hátíð­ar­hring ann­ars eru þær ekki gjald­gengar inn á hátíðir. Þessi söfnun mun því flýta mjög fyrir þann pró­sess. Við gerðum í raun rosa­lega stóra litla mynd. Tókum upp erlendis, vorum með fjöl­þjóð­legt kvik­mynda­gerða­fólk, lista­menn frá Íslandi, Tyrk­landi, Spáni, Kanada, Frakk­landi og Danmörku. Stór og góður hópur. Ævin­týra­leg lífs­reynsla.

Þegar ég var kynnt fyrir Elfu­sjóði og fyrir hvað hann stendur fyrir, hitti það mig í hjarta­stað og ég ákvað að vekja athygli á sjóðnum með þess­ari fjár­öflun. Þetta er ómet­an­legt sam­fé­lags­verk­efni sem þarf að líta dags­ins ljós sem allra fyrst því ég hef verið í þeirri stöðu að eiga erfitt með að leita réttar míns og það eru ótelj­andi konur hér á landi í sömu stöðu.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Þemað snýst auð­vitað um sam­stöðu gegn kyn­bundnu ofbeldi. Við þurfum að standa saman, konur þurfa að hafa hátt um sögur sínar og fá rétt­láta máls­með­ferð eftir ofbeldi. Mögulega er kannski smá hlið­ar­þema sam­staða með konum í kvik­mynda­gerð. Konur þurfa að fá að segja sínar sögur og láta ljós sitt skína á þessum magn­aða miðli sem kvik­mynda­gerð er. Ég var heppin sem ein­stak­lingur að lifa af og er nú í þeirri for­rétt­inda­stöðu að geta sagt mína sögu af ofbeldi og mann­rétt­inda­broti, það er ekki á allra færi. Þess vegna er svo mik­il­vægt að þessi saga fái að heyr­ast.

Við viljum greiða öllum leið að styðja verk­efnið og hjálpa okkur að ná mark­mið­inu. Auðvitað eru sumir ekki með kredit­kort en greiðslur eru gjald­færðar af kortum eftir að fjár­öfl­un­ar­tíma lýkur og ein­ungis ef fjár­öfl­unin mark­mið­inu. Við höfum því ákveðið að hafa þann mögu­leika að styrkt­ar­að­ilar geta lagt beint inn á reikn­ing og við myndum svo leggja inn á söfn­un­ina fyrir þeirra hönd! Við­kom­andi getur svo sent okkur póst á arcus@arcusfilms.com með ban­ka­upp­lýs­ingum svo við getum end­ur­greitt ef við náum ekki settu tak­marki en við vonum og trúum því inni­lega að okkur tak­ist vel til.

Ef þú vilt láta gott af þér leiða þá er þetta til­valið verk­efni til þess að styrkja.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér, fylgj­ast með því á Facebook hér og síða Elfu­sjóðs­ins er hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár