Indigo mun fyrst eignast 49 prósent í WOW – Gætu eignast mun stærri hlut

Indigo Partners stefnir að því að lána WOW air fjár­muni til að snúa við rekstri flug­fé­lags­ins. Lánið verður í formi tíu ára skulda­bréfs með breytirétti og fyrir lán­veit­ing­una ætlar Indigo að eign­ast 49 pró­sent í WOW air.

Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, sendi bréf til skuldabréfaeigenda.
Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, sendi bréf til skulda­bréfa­eig­enda. Mynd: WOW air

Fjár­fest­ing Indigo í WOW air verður aðal­lega í formi tíu ára breyti­legs láns. Árlegir vextir verða greiddir í reiðufé kjósi Indigo að inn­heimta þá. Höf­uð­stóll láns­ins og ógreiddir vextir verða greið­an­legir þegar láns­tím­anum lýkur.

Indigo Partners mun eign­ast 49 pró­sent í WOW air gangi áformin eftir. Félagið getur hins vegar eign­ast stærri hlut ef það ákveður að breyta lánum sínum í nýtt hlutafé í sam­ræmi við ákvæði þeirra á láns­tím­anum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í til­kynn­ingu frá Skúla Mogensen, for­stjóra og eig­anda WOW air, sem birt var á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins í dag.

Þar segir enn fremur að við­ræður standi enn yfir um hvernig staða þeirra sem keyptu skulda­bréfa­flokk félags­ins í fyrra­haust verði eftir end­ur­skipu­lagn­ingu. Til greina komi að breyta kröfum þeirra í hlutafé áður en Indigo Partners ræðst í sína fjár­fest­ingu eða hvort end­ur­samið verði um skil­mála með þeim hætti að skulda­bréfa­eig­end­urnir falli frá breytirétti.

Verði fjár­fest­ing Indigo Partners að veru­leika þá mun heildar fjár­fest­inga­upp­hæðin taka mið af fjár­þörf WOW air í þeim við­snún­ingi á rekstr­inum sem stefnt er að á næstu miss­erum. Þetta sé í takt við þá lang­tíma­fjár­fest­inga­stefnu sem Indigo Partners hafi sýnt að félagið vinnur eftir þegar það hefur komið að rekstri flug­fé­laga. Það séu til að mynda 14 ár frá því að félagið fjár­festi í Wizz air, átta ár frá fjár­fest­ingu í Volaris og fimm ár frá því að fjár­fest var í Frontier Airlines.

Skulda­bréfa­eig­end­urnir munu greiða atkvæði um fyr­ir­liggj­andi til­lögur. Þeirri atkvæða­greiðslu lýkur 17. jan­úar næst­kom­andi.

Tilkynnt var um það í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins að Indigo Partners hefði náð sam­komu­lagi um fjár­fest­ingu í WOW air.

13. des­em­ber var til­kynnt að vélum félags­ins muni fækka enn frekar, og verði í nán­ustu fram­tíð ell­efu eftir að hafa verið 24 fyrir nokkrum vikum síðan. Fjölda­upp­sagnir eru þegar hafnar hjá WOW air og hætt hefur verið við kostn­að­ar­söm flug, meðal ann­ars til Indlands, en jóm­frú­ar­ferð WOW air þangað var farin í byrjun des­em­ber 2018. Samkvæmt til­kynn­ingu verður síð­asta flug frá Nýju Delí 20. jan­úar næst­kom­andi og frá Los Angeles í Banda­ríkj­unum 14. jan­úar 2019.

Þann 14. des­em­ber var birt yfir­lýs­ing á vef WOW air þar sem kom fram að fjár­fest­ing Indigo Partners í félag­inu gæti verið upp á allt að 75 millj­ónir dala, um 9,4 millj­arða króna.

Þann 20. des­em­ber var greint frá því að félagið hefði selt flug­tíma sína á Gatwick flug­velli í London í kjöl­far end­ur­skipu­lagn­ingar á rekstri félags­ins. Hvorki kaup­verð né kaup­andi var gefið upp sam­kvæmt til­kynn­ingu þar sem um trún­að­ar­sam­komu­lag er að ræða.

Því mun WOW air hætta að fljúga til Gatwick frá 31. mars næst­kom­andi og eftir það fljúga ein­göngu um Stan­sted flug­völl í borg­inni. Þá hefur félagið til­kynnt um að það muni hefja aftur flug til Edin­borgar frá og með júní­mán­uði 2019.

Í byrjun þess­arar viku var greint frá því að WOW air hafi þurft að fella niður flug­ferðir til minnst sex flug­valla vegna end­ur­skipu­lagn­ingar leiða­kerfis og fækkun í flota. Þetta á við staði á borð við Los Ang­el­els, San Francisco, Nýju Del­í og Chicago en einnig hafa ein­staka flug til Kaup­manna­hafn­ar, ­Mílanó og London verið felld nið­ur. Ekki er vitað hversu margar ferðir hafa verið felldar niður í heild­ina.

WOW air tap­aði alls 33,6 millj­­­ónum dala, sem jafn­­­­­gildir um 4,2 millj­­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018. Á sama tíma­bili 2017 nam tap félags­­­ins 13,5 millj­­­ónum dala, jafn­­­virði tæp­­­lega 1,7 millj­­­arða króna miðað við núver­andi gengi. EBITDA félags­­­ins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 millj­­­ónir dala fyrstu níu mán­uði árs­ins 2017 í að vera nei­­­kvæð um 18,9 millj­­­ónir dala í fyrra, sem er um 2,3 millj­­­arða íslenskra króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár