FA telur vinnubrögð ráðherra tilefni til málsóknar

Félag atvinnu­rek­enda telur að vinnu­brögð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins vegna kostn­að­ar­út­reikn­inga að baki rafrettu­eft­ir­lits­gjalda sé til­efni til mál­sóknar á hendur ráð­herra. Ráðu­neytið hefur engar upp­lýs­ingar veitt um hvernig gjaldið end­ur­spegli kostnað

Félag atvinnu­rek­enda telur að vinnu­brögð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins vegna kostn­að­ar­út­reikn­inga að baki rafrettu­eft­ir­lits­gjalda sé til­efni til mál­sóknar á hendur ráð­herra. Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur engar upp­lýs­ingar veitt um kostn­að­ar­út­reikn­inga að baki 75.000 króna gjaldi, sem lagt er á hverja til­kynn­ingu um mark­aðs­setn­ingu á rafrettum og tengdum vörum. Í svari við erindi FA um gjaldið kom fram að ráðu­neytið hefði til skoð­unar hvernig gjaldið end­ur­speglar kostnað og að ráðu­neytið áætli að ljúka þeirra skoðun í mars. Gjald­takan hófst hins vegar í sept­em­ber í fyrra.

Til skoðunar hjá ráðuneytinu hvernig gjaldið endurspeglar kostnað

Í yfir­lýs­ingu frá Félagi atvinnu­rek­enda segir að for­saga máls­ins sé sú að heil­brigð­is­ráð­herra setti reglu­gerð um rafrettur í byrjun sept­em­ber, en sam­kvæmt henni ber fram­leið­endum og inn­flytj­endum rafrettna að til­kynna mark­aðs­setn­ingu var­anna til Neyt­enda­stofu. Í upp­haf­legri gerð reglu­gerð­ar­innar var ekk­ert um fjár­hæð eft­ir­lits­gjalds­ins sem Neyt­enda­stofa tekur, en þegar reglu­gerðin tók gildi var komið inn í hana ákvæði um 75.000 króna gjald fyrir hverja til­kynn­ingu, sam­kvæmt FA.

FA sendi erindi vegna reglu­gerð­ar­innar til ráðu­neyt­is­ins í sept­em­ber á síð­asta ári, engin svör bár­ust fyrr en félagið kvart­aði til umboðs­manns Alþingis. Erindi FA var síðan svarað rétt fyrir jól og í svari ráðu­neyt­is­ins segir að ráðu­neytið hafi „til skoð­unar hvernig gjaldið end­ur­speglar kostnað við mót­töku til­kynn­inga, geymslu þeirra sem og með­höndlun og grein­ingu upp­lýs­inga sem fylgdu þeim.“ Áætlar ráðu­neytið að þeirri skoðun ljúki fyrir 1. mars næst­kom­andi. Gjald­takan hófst hins vegar 1. sept­em­ber og stendur enn.[adspot]

Gjaldið sé í raun ólögmætur skattur

Félagið segir að gjaldið geti þýtt millj­óna króna útgjöld fyrir marga inn­flytj­endur og selj­endur rafrettna. Í erindi FA til ráðu­neyt­is­ins voru­gerðar voru marg­vís­legar athuga­semdir við vinnu­brögðin við setn­ingu reglu­gerð­ar­innar og meðal ann­ars bent á þá meg­in­reglu stjórn­sýslu­réttar að eft­ir­lits­gjöld verði ein­göngu nýtt til að standa straum af þeim kostn­aði, sem af við­kom­andi eft­ir­lits­að­gerð leiðir og þurfi fjár­hæð þeirra að byggj­ast á traustum útreikn­ingum. Félagið gerði einnig alvar­lega athuga­semd við ákvörðun fjár­hæðar gjalds­ins.

Samkvæmt FA virt­ist gjaldið hafa verið byggð á ágiskun, án þess að kostn­að­ar­grein­ing lægi fyrir, og telur félagið gjaldið vera langt umfram raun­hæfan kostnað við eft­ir­litið. Því segir FA að gjaldið sé í raun ólög­mætur skattur. Félagið krafð­ist ógild­ingar reglu­gerð­ar­innar og bauð jafn­framt fram sam­starf við ráðu­neytið um setn­ingu nýrrar reglu­gerðar.

Virðist sem ráðuneytið ætli að reikna sig upp í gjaldið eftir á

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri FA, segir í yfir­lýs­ing­unni að þetta sé að mati félags­ins full­kom­lega óboð­leg stjórn­sýsla. „Eitt er að ráðu­neyti svari ekki bréfum frá sam­tökum fyr­ir­tækja, sem eiga mik­illa hags­muna að gæta vegna stjórn­valds­á­kvarð­ana. Því miður er það ekki eins­dæmi; við biðum í átta mán­uði eftir svari frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu vegna ann­ars mik­il­vægs máls. “

Ólafur segir það síðan frá­leitt að ráðu­neytið stefni á að kom­ast að nið­ur­stöðu um hvort að gjald­takan sé lög­mæt í byrjun mars á þessu. ári. „Gjald­töku­á­kvæðið hefur verið virkt frá 1. sept­em­ber 2018 og fyr­ir­tækin, sem um ræðir, áttu rétt á því strax í upp­hafi að fá að vita að traustir kostn­að­ar­út­reikn­ingar lægju að baki gjald­tök­unni. Nú virð­ist sem ráðu­neytið ætli að reikna sig upp í gjaldið eft­irá.“

Ólafur segir því að með þessum vinnu­brögðum gefi ráðu­neytið fullt til­efni til mál­sóknar á hendur ráð­herra. „Und­an­farin ár hafa margir dómar fallið, þar sem ríkið hefur verið dæmt til að end­ur­greiða fyr­ir­tækjum eft­ir­lits­gjöld, sem hafa ýmist verið rangt eða ekki kostn­að­ar­greind, eins og við blasir í þessu til­viki. Með þessum vinnu­brögðum gefur ráðu­neytið fullt til­efni til mál­sóknar á hendur ráð­herra,“ segir Ólafur að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár