Viðskiptamaður ársins vill breyta nafni HB Granda í Brim

Guð­mundur Krist­jáns­son er við­skipta­maður árs­ins sam­kvæmt Mark­aðnum. Verstu við­skiptin á árinu tengj­ast WOW air, Icelandair og kaupum fjar­skipta­fyr­ir­tækis á hluta fjöl­miða 365 miðla.

Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri HB Granda, var val­inn við­skipta­maður árs­ins 2018 af Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti. Í við­tali við blaðið vegna þessa seg­ist hann muna leggja fram til­lögu við stjórn félags­ins, sem er skráð í Kauphöll Íslands, að nafni þess verði breytt í Brim.

[links]Útgerð­ar­fé­lag Guð­mundar hét Brim árum saman. Eftir að hann keypti um þriðj­ungs­hlut í HB Granda í fyrra fyrir 22 millj­arða króna í ár þá breytti hann nafni þess í Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur. Nú vill hann nota gamla nafnið á nýja félagið sem hann stýrir. Í við­tali við Mark­að­inn segir Guð­mundur að honum hafi alltaf þótt Brim vera fal­legt nafn á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki og að hann hafi „oft hugsað um að Brim yrði sterkt almenn­ings­hluta­fé­lag á hluta­bréfa­mark­aði.“

[adspot]Í við­tal­inu kemur enn fremur fram að Guð­mundur hafi fjár­magnað kaupin á hlutnum í HB Granda með láni frá Land­bank­anum og að eigna­sala í kjöl­far lán­tök­unnar hafi greitt upp lánið. Eigna­salan, sem í fólst að selja útgerð­ina Ögurvík til HB Granda, sala á stórum hlut í VInnslu­stöð­inni í Vest­manna­eyjum og sölu á skipi í eigu græn­lensks hlut­deild­ar­fé­lags, skil­aði Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur hærri upp­hæð en sem nam fjár­fest­ing­unni í HB Granda. Því skuldi félagið minna í lok árs en í upp­hafi þess. Guð­mundur segir í við­tail­inu að hann hefði helst vilja selja HB Granda allar eign­irnar, en að ekki hafi verið vilji fyrir því .

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um rús­sí­ban­areið Guð­mundar á und­an­förnum árum í ítar­legri frétta­skýr­ingu fyrir skemmstu.

Mark­að­ur­inn valdi söl­una á tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­inu CCP til kóreska leikja­fram­leið­and­ans Pearl Abyss á 425 millj­ónir dali, eða tæp­lega 50 millj­arða króna, í byrjun sept­em­ber sem við­skipti árs­ins.

Fjár­fest­ing í skulda­bréfa­út­boði WOW air í sept­em­ber voru hins vegar valin verstu við­skipti árs­ins enda þegar ljóst, nokkrum vikum síðar, að þátt­tak­endur þurfa að end­ur­semja um þá fjár­fest­ingu eigi WOW air að lifa. Næst verstu við­skiptin var sú ákvörðun Icelandair Group að falla frá kaup­unum á WOW air og kaup Sýnar á stórum hluta fjöl­miðla 365 miðla lenti í þriðja sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár