Kóreskt fyrirtæki kaupir CCP á 46 milljarða

Stærsti tölvu­leikja­fram­leið­andi Íslands hefur verið seldur. Starf­sem­inni verður haldið áfram í sjálf­stæðri ein­ingu og stúdíó CCP í Reykja­vík verður áfram starf­rækt.

Hilmar Veigar Pétursson er forstjóri CCP.
Hilmar Veigar Pét­urs­son er for­stjóri CCP. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kóreski leikja­fram­leið­and­inn Pearl Abyss hefur keypt íslenska tölvu­leikja­fram­leið­and­ann CCP á 425 millj­ónir dali, eða 46 millj­arða króna. CCP mun áfram starfa sem sjálf­stæð heild og reka leikja­stúdíó í Reykja­vík, London og Sjanghæ. Pearl Abyss naut ráð­gjafar Deutsche Bank og lög­manns­stof­anna Kim & Chang og LEX við kaupin. CCP til aðstoðar voru The Raine Group og lög­manns­stof­urnar White & Case LLP og LOGOS. Stjórn­endur CCP verða áfram þeir sömu og fyrir og áform fyr­ir­tæk­is­ins um að flytja í nýjar höf­uð­stöðvar í Vatns­mýr­ina eru óbreytt.

Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri CCP, segir að Pearl Abyss sé eitt mest spenn­andi og hrað­vax­andi fyr­ir­tækið í leikja­iðn­aðnum í dag. „Það hefur margt nýtt fram að færa hvað varðar tækni, getu og fram­tíð­ar­sýn. Ég held að fyr­ir­tækin geti lært mikið hvort af öðru. Við erum spennt að taka saman höndum með þeim og ná nýjum hæðum með bæði fyr­ir­tækin, leik­ina sem við þróum og - það sem mestu skiptir – spilar­ana okkar.“ Hilmar Veigar átti sjálfur 6,5 pró­sent hlut í CCP og getur því átt von á að fá um þrjá millj­arða króna fyrir hlut sinn.

Risastórt fyrirtæki

Pearl Abyss leikja­fyr­ir­tækið var stofnað árið 2010 og gaf fyrst út fjöl­spil­un­ar­leik­inn Black Desert Online í Kóreu árið 2014. Frá því að Pearl Abyss var skráð á hluta­bréfa­markað árið 2017 hefur fyr­ir­tækið unnið mark­visst að því að kaupa alþjóð­lega leikja­fyr­ir­tæki á borð við CCP til að vaxa enn hraðar á heims­vísu. Verðmæti fyr­ir­tæk­is­ins við síð­ustu við­skipti í kóresku kaup­höll­inni var jafn­virði um 300 millj­arða íslenskra króna. Pearl Abyss sló tekju­met á fyrri helm­ingi þessa árs þegar far­síma­út­gáfa Black Desert Mobile kom út í Kóreu.

Aðalvara CCP er líka fjöl­spil­un­ar­leikur, EVE Online, sem er einn elsti og virt­asti slíki leikur í heimi.

Í til­kynn­ingu er haft eftir Robin Jung, for­stjóra Pearl Abyss, að fyr­ir­tækið sé gríð­ar­lega ánægt með að fá CCP í hóp­inn. „ CCP er reynslu­mik­ill leikja­fram­leið­andi með yfir 15 ára reynslu og þekk­ingu á staf­rænni dreif­ingu. Þau hafa staðið sig gríð­ar­lega vel í því að styrkja og við­halda spil­ara­hóp EVE og við von­umst til að læra af þeim og nýta þá þekk­ingu í leikjum Pearl Abyss. Ég er full­viss um hin þekktu hug­verk CCP ásamt reynslu þeirra af alþjóð­legri útgáfu muni efla bæði fyr­ir­tækin í að halda áfram að þróa bestu fjöl­spil­un­ar­leik­ina.“

Novator verið leiðandi hluthafi í þrettán ár

Stærsti eig­andi CCP er félagið NP ehf., sem er í eigu Novator Partners, með 27,2 pró­sent hlut. Auk þess á Novator ehf. 8,46 pró­sent hlut auk þess sem annað félag sam­stæð­unar á hlut. Samtals eiga aðilar tengdir Novator 43,32 pró­sent. Eigendur þess­ara félaga eru m.a. Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, Birgir Már Ragn­ars­son og Andri Sveins­son og hafa þeir verið leið­andi fjár­festar í CCP frá árinu 2005. Aðrir stórir fjár­festar hafa verið sjóð­irnir General Catalyst Partners og New Enter­prise Associates.

Birgir Már hefur verið stjórn­ar­for­maður CCP und­an­farin ár. Hann segir að á þeim tíma sem lið­inn sé frá því að Novator kom að CCP hafi fyr­ir­tækið vaxið úr því að hafa nokkra tugi starfs­manna í að reka starfs­stöðvar víða um heim með hund­ruðum starfs­manna. „Hilmar Veigar Pét­urs­son og allt hans skap­andi og ein­arða teymi hefur byggt upp félag, sem Novator lætur nú stolt í hendur Pearl Abyss. Saman verða þessi félög firna­sterk og í góðri stöðu til að halda áfram að vaxa.“

Salan í pípunum í nokkurn tíma

Sala á CCP hefur lengi verið í píp­unum. Greint var frá því í lok árs 2016 að stærstu eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins væru að íhuga sölu. Samkvæmt frétt Bloomberg á þeim tíma var talið að sölu­verðið gæti orðið allt að 900 millj­ónir evra, enda hafði CCP skilað met­hagn­aði á árinu 2015, alls um 2,7 millj­örðum króna, eftir að hafa tapað 8,7 millj­örðum króna árið áður. Ljóst er, miðað við verð­mið­ann á við­skipt­unum sem greint var frá í morgun, að verð­mið­inn hefur lækkað umtals­vert á síð­ustu tveimur árum.

Afkoma CCP hefur verið jákvæð und­an­farin tvö ár. Fyr­ir­tækið hagn­að­ist um 21,5 millj­ónir dala, tæp­lega 2,4 millj­arða króna, árið 2016 og 2,7 millj­ónir dala, um 300 millj­ónir króna, í fyrra.

Þrátt fyrir þetta var ráð­ist í hóp­upp­sagnir hjá CCP í lok októ­ber í fyrra. Þá voru kynntar breyt­ingar sem höfðu áhrif á um 100 af rúm­lega 370 starfs­mönnum á þeim tíma, þar af um 30 starfs­menn á Íslandi. Starfs­stöð CCP í Atlanta var lokað í aðgerð­unum, starf­stöðin í Newcastle var seld og þróun sýnd­ar­veru­leika­leikja var hætt, að minnsta kosti tíma­bundið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár