Wizz air keypti lendingarleyfi WOW air á Gatwick

Lend­ing­ar­leyfi WOW air á Gatwick flug­vell­inum í London fóru til tveggja flug­fé­laga, Wizz air og easyJet. Salan á leyf­unum fór fram sama dag og til­kynnt var um mögu­lega fjár­fest­ingu Indigo Partners í WOW air en Wizz air er í eigu Indigo Partners.

Breska flug­fé­lagið easyJet og hið ung­verska flug­fé­lag Wizz air keyptu lend­ing­ar­leyfi WOW air á Gatwick flug­velli í London. Rétt fyrir jól stað­festu stjórn­endur WOW air að félagið hefði selt lend­ing­ar­leyfi sín á Gatwick en hvorki kaup­verð né kaup­andi var gefið upp í til­kynn­ing­unni þar sem um trún­að­ar­sam­komu­lag er að ræða. Nýupp­færðar upp­lýs­ingar um lend­ing­ar­leyfi í Bret­landi sýna hins vegar að það voru flug­fé­lögin EasyJet og Wizz air sem keyptu lend­ing­ar­leyfi WOW air. Túristi.is greindi fyrst frá þessu.

Wizz air er í eigu Indigo Partners

[links]Flug­fé­lagið Wizz air er að stórum hluta í eigu félags­ins Indigo Partners sem nú er í við­ræðum við WOW air um kaup á félag­inu. Hvert kaup­verðið var fyrir lend­ing­ar­leyfin kemur ekki fram í breskum gögnum um lend­ing­ar­leyfi. Í gögn­unum kemur þó fram að easyJet tekur við morg­un­tímum WOW air en Wizz air tekur við kvöld­tímunum á Gatwick sam­kvæmt umfjöllun Túrista.

Sala á leyf­unum til Wizz Air fór fram 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, sama dag og til­kynnt var um að að flug­fé­lagið Indigo Partners ætl­aði mögu­lega að fjár­festa í WOW air. En dag­inn áður hafði Icelandair hætt við að festa kaup á WOW air. Salan á leyf­unum til easyJet fór fram 5. des­em­ber. 

Íslenskir fjöl­miðlar greindu frá því skömmu fyrir síð­ustu mán­aða­mót að ein fljót­leg­asta leiðin fyrir WOW air til að verða sér úti um laust fé væri að selja lend­ing­ar­stæði sín á Gatwick flug­velli. Þau stæði voru með þeim verð­mæt­ari í eigu WOW air. WOW air mun hætta að fljúga til Gatwick frá 31. mars næst­kom­andi og eftir það fljúga ein­göngu um Stan­sted flug­völl í borg­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár