WOW air búið að selja flugtíma sína á Gatwick

WOW air mun ekki lengur fljúga til Gatwick flug­vallar í London eftir að hafa selt flug­tíma sína á vell­inum. Héðan í frá mun allt London-flug félags­ins fara í gegnum Stansted-völl.

WOW air hefur selt flug­tíma sína á Gatwick flug­velli í London í kjöl­far end­ur­skipu­lagn­ingar á rekstri félags­ins. Hvorki kaup­verð né kaup­andi er gefið upp sam­kvæmt til­kynn­ingu þar sem um trún­að­ar­sam­komu­lag er að ræða.

Því mun WOW air hætta að fljúga til Gatwick frá 31. mars næst­kom­andi og eftir það fljúga ein­göngu um Stansted flug­völl í borg­inni. Þá hefur félagið til­kynnt um að það muni hefha aftur flug til Edin­borgar frá og með júní­mán­uði 2019.

Íslenskir fjöl­miðlar greindu frá því skömmu fyrir síð­ustu mán­aða­mót að ein fljót­leg­asta leiðin fyrir WOW air til að verða sér úti um laust fé væri að selja lend­ing­ar­stæði sín á Gatwick flug­velli. Þau stæði voru með þeim verð­mæt­ari í eigu WOW air.

Í síð­ustu viku var greint frá því að WOW air ynni nú að því að ná sam­komu­lagi við banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið Indigo Partners um að fjár­festa í sér, og gæti sú fjár­fest­ing verið upp á allt að 75 millj­ónir dala, eða um 9,4 millj­arða króna.

Til að áformin gangi eftir þurfa eig­endur skulda­bréfa WOW air að sam­þykkja ákveðnar breyt­ingar á skil­málum þeirra útgáfa sem þeir hafa keypt.

Þann 13. des­em­ber var til­kynnt um mik­inn sam­drátt í rekstri WOW air. Vélum félags­ins, sem voru 24 fyrir nokkrum vikum síð­an, verða ell­efu innan skamms. Leið­ar­kerfi WOW air mun taka breyt­ingum og áfanga­stöðum fækk­að. Þá munu allt að 350 manns missa vinn­una. Þar ef eru 111 fast­ráðnir starfs­menn auk hluta­starfs­manna og verk­taka.

WOW air tap­aði alls 33,6 millj­­­ónum dala, sem jafn­­­­­gildir um 4,2 millj­­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili í fyrra nam tap félags­­­ins 13,5 millj­­­ónum dala, jafn­­­virði tæp­­­lega 1,7 millj­­­arða króna miðað við núver­andi gengi. EBITDA félags­­­ins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 millj­­­ónir dala fyrstu níu mán­uði síð­­­asta árs í að vera nei­­­kvæð um 18,9 millj­­­ónir dala nú, sem er um 2,3 millj­­­arða íslenskra króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár