Fjölmennustu hópuppsagnir síðan árið 2009

111 fast­ráðnum starfs­mönnum var sagt upp störfum hjá WOW air í vik­unni og náðu upp­sagn­irnar þvert á fyr­ir­tæk­ið. Samn­ingar við verk­taka og tíma­bundna starfs­menn verða jafn­framt ekki end­ur­nýj­aðir. Þetta eru fjöl­menn­ustu hóp­upp­sagnir síðan 2009.

Vinnu­mála­stofnun hefur ekki fengið jafn fjöl­mennar hóp­upp­sagnir og nú eiga í hlut í flug­þjón­ust­unni, síðan 2009 þegar um 600 manns var sagt upp í tveimur hóp­upp­sögnum hjá Ístaki hf.

[links]Þetta kemur fram í svari Vinnu­mála­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans. Samkvæmt stofn­un­inni tekur hún saman á fyrsta degi nýs mán­aðar, þær fjölda­upp­sagnir sem þeim hefur borist mán­uð­inn á undan og í hvaða greinum.

Í fyrra­dag var 111 fast­ráðnum starfs­mönnum WOW air sagt upp störfum og ná upp­sagnir starfs­manna þvert á fyr­ir­tæk­ið. Að sama skapi munu samn­ingar við verk­taka og tíma­bundna starfs­menn ekki verða end­ur­nýj­aðir að svo stöddu. Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu kemur fram að vonir standi til að stór hluti þeirra sem fengu upp­sögn í fyrra­dag fái tæki­færi hjá félag­inu að nýju.

Hóp­upp­sagnir eru skil­greindar í lögum sem upp­sagnir atvinnu­rek­anda á fast­ráðnum starfs­mönnum af ástæðum sem ekki tengj­ast hverjum þeirra um sig, þegar fjöldi starfs­manna sem sagt er upp á þrjá­tíu daga tíma­bili er:

  • að minnsta kosti 10 starfs­menn í fyr­ir­tækjum sem venju­lega hafa fleiri en 20 og færri en 100 starfs­menn í vinnu, 
  • að minnsta kosti 10 pró­sent starfs­manna í fyr­ir­tækjum sem venju­lega hafa hið minnsta 100 starfs­menn, en færri en 300 starfs­menn í vinnu og 
  • að minnsta kosti 30 starfs­menn í fyr­ir­tækjum sem venju­lega hafa 300 starfs­menn eða fleiri í vinnu.

Við útreikn­ing á fjölda þeirra sem sagt er upp skal litið á upp­sögn ráðn­ing­ar­samn­ings ein­stakra starfs­manna sem jafn­gilda hóp­upp­sögnum að því til­skildu að um minnst fimm upp­sagnir sé að ræða.

Skúli Mog­en­sen for­stjóri og stofn­andi WOW air sagði fyrra­dag ver­a erf­ið­asta dag­inn­ í sögu WOW air. „Við erum með frá­bæran hóp af fólki sem hefur lagt hart að sér að gera WOW air að veru­leika og það er því sorg­legt að neyð­ast til að fara í þennan nið­ur­skurð. Ég vildi óska þess að það væri til önnur leið en stað­reyndin er sú að við verðum að snúa við rekstr­inum og koma honum aftur í gott horf áður en við getum hafið upp­bygg­ing­una að nýju,“ sagði Skúli.

Eftir þessar rekstr­ar­breyt­ingar munu áfram starfa hátt í þús­und manns hjá félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár