Bréf Icelandair rjúka upp eftir fréttir af samdrætti hjá WOW

WOW air dregur veru­lega saman rekstur sinn. Afleið­ing þess er sú að hluta­bréfa­verð í stærsta sam­keppn­is­að­ila fyr­ir­tæk­is­ins hefur hækkað veru­lega.

Hluta­bréf í Icelandair Group hafa hækkað um tæp 15 pró­sent það sem af er degi. Ástæðuna má rekja til til­kynn­ingar WOW air, helsta sam­keppn­is­að­ila Icelandair, sem send var út fyrr í dag um að fyr­ir­tækið sé að draga mjög saman seglin.

[links]Helsta birt­ing­ar­mynd þess eru upp­sagnir á mörg hund­ruð starfs­mönnum sam­hliða því að flug­vélum í flota WOW air verður fækkað úr 20 í 11.

Raunar var hluta­bréfa­verð í Icelandair farið að hækka mjög í morgun, áður en til­kynn­ing WOW air var send út um ell­efu­leytið. Það gefur til kynna að upp­lýs­ingar um aðgerð­irnar hafi lekið út áður en form­lega var til­kynnt um þær.

Kjarninn fékk upp­lýs­ingar um það í gær að til stæði að selja fjórar vélar WOW air, en fékk það ekki stað­fest.

[adspot]Í til­kynn­ingu félags­ins í dag kemur hins vegar fram að verið sé að ganga frá samn­ingi þess efnis að selja fjórar Airbus A321 flug­vélar sem verða afhentar í jan­úar 2019 og mun bæta lausafé félags­ins um 10 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Auk þess verða, líkt og áður sagði, fimm öðrum vélum WOW air skilað til leigu­sala.

Rekstur WOW air hefur staðið tæpt um nokkuð langt skeið. Fyr­ir­tækið fór í skulda­bréfa­út­boð fyrr á þessu ári sem dugði ekki til að rétta rekst­ur­inn við. Í nóv­em­ber var til­kynnt að Icelandair ætl­aði að kaupa WOW air en síðar var hætt við þau kaup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár