Þykir miður að hafa fengið staðfestingu á fordómum í garð fatlaðs fólks

Kvenna­hreyf­ing ÖBÍ hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu en þar kemur fram að þeim þyki miður að hafa fengið stað­fest­ingu á þeim sví­virði­legum for­dómum í garð fatl­aðs fólks sem ríki meðal margra alþing­is­manna.

1. maí kröfuganga.
1. maí kröfu­ganga. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kvenna­hreyf­ing Öryrkja­banda­lags Íslands mót­mælir því að á Alþingi sitji fólk sem haldið sé botn­lausri kven­fyr­ir­litn­ingu og taki ákvarð­anir sem hafa bein áhrif á líf fólks. Alþing­is­menn hafi núna við afgreiðslu fjár­laga gullið tæki­færi til að sýna í verki að þeir líti ekki á fatlað fólk sem skyn­lausar skepnur og geti tryggt öryrkjum mann­sæm­andi lífs­kjör.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Kvenna­hreyf­ingu ÖBÍ.

Þeim þykir miður að hafa fengið stað­fest­ingu á þeim sví­virði­legum for­dómum í garð fatl­aðs fólks sem ríki meðal margra alþing­is­manna.

„For­dóm­arnir koma ekki á óvart, því það er löngu ljóst að stjórn­völd líta ekki á öryrkja sem mann­eskjur. Nægir þar að nefna að örorku­líf­eyr­is­tekjur duga ekki til fram­færslu. Hvorki lög­gjaf­ar­valdið né dóms­valdið hafa séð ástæðu til að fram­fylgja þeim mann­rétt­inda­sátt­málum sem íslenska ríkið er aðili að þegar kemur að ákvörð­unum er varða okkar líf,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

[adspot]

[links]Freyja Har­alds­dótt­ir, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Bjartrar fram­tíðar og þekkt bar­áttu­kona fyrir auknum mann­rétt­indum fatl­aðra, sagði í stöðu­upp­færslu á Face­book að niðr­andi og meið­andi ummæli þing­manna á drykkju­fundi í þar­síð­ustu viku, um hana og fjöl­marga aðra naf­greinda ein­stak­linga, væru kerf­is­bundið hat­ur. „Það bein­ist harð­ast að kon­um. Hinsegin fólki. Fötl­uðu fólki. Karl­mönnum sem ein­hvern­veg­inn passa ekki inn í ríkj­andi hug­myndir um (skað­lega) karl­mennsku. Það er hvorki til­viljun né eins­dæmi að akkúrat þessir hópar séu við­fang orð­a­níðs fólks með mikil for­rétt­indi. Það er alltum­lykj­andi - alltaf.“

Á upp­tökum af drykkju­fundi þing­mann­anna, sem til­heyra Mið­flokknum og Flokki fólks­ins, heyr­ast þeir gera grín að Freyju, sem þjá­ist af sjald­­gæfum beina­­sjúk­­dómi. Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­maður Mið­flokks­ins, kall­aði hana „Freyju eyju“ og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, gerði grín af því að tveir hinna mann­anna við borðið hefðu sér­stakan áhuga á Freyju og nafn­greindri þing­konu Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Ein­hver úr hópnum hermdi í kjöl­farið eftir sel.

Freyja sagði í stöðu­upp­færslu sinni að fyrstu við­brögð hennar við hat­urs­orð­ræðu þing­mann­anna hefði verið að verja hvorki krafti né orðum í hana og halda áfram með vinnu­dag­inn sinn. „En ég hélt auð­vitað ekk­ert áfram með dag­inn minn að neinu ráði - þetta hefur tekið sinn toll líkt og allt ofbeldi ger­ir.“

Hún skrif­aði grein á Kjarnann sem birt­ist síð­asta sunnu­dags­kvöld þar sem hún greinir frá sam­skiptum sínum við Sigmund Davíð en hann hringdi í hana fyrr um dag­inn. „Ég frá­bið mér frek­ari sím­töl þar sem ófatl­aður karl­maður í valda­stöðu talar niður til mín og reynir að útskýra fyrir mér hvað eru fötl­un­ar­for­dómar og hvað ekki. Eina eðli­lega sím­talið í stöð­unni væri að biðj­ast ein­læg­lega afsök­unar, án nokk­urra útskýr­inga eða mála­leng­inga, og segj­ast í ljósi gjörða sinna ætla að axla ábyrgð á ofbeld­inu sem við vorum beittar og segja af sér,“ sagði hún í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár