Guðlaugur Þór: Sigmundur Davíð greindi frá áhuga Gunnars Braga á sendiherrastöðu

Utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fund­uðu óform­lega með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni fyrir nokkrum vikum. Efni fund­ar­ins, sem var haldin að frum­kvæði Sig­mundar, var að greina frá áhuga Gunnars Braga Sveins­sonar á sendi­herra­stöðu.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir að hann hafi, ásamt Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, átt óform­legan fund með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokks­ins, þar sem hann greindi ráð­herr­unum tveimur frá áhuga Gunnars Braga Sveins­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, á sendi­herra­stöðu. Guð­laugur segir að fund­ur­inn hafi verið að frum­kvæði Sig­mundar Davíðs. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu hans á Facebook.

[links]Guð­laugur Þór segir að það sé alvana­legt að ráð­herra eða ráð­herrar hitti þing­menn að máli og að það sé ekki óal­gengt að ráð­herra fái upp­á­stungur og með­mæli með fólki í stöðu sendi­herra.

„Um efni fund­ar­ins hef ég litlu við það að bæta sem fram er komið hjá for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins um málið. Sem fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra kann Gunnar Bragi að hafa haft vænt­ingar um slíka skipun en það er í það minnsta ekki á grund­velli neinna lof­orða, eins og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og raunar Gunnar Bragi sjálfur, hefur stað­fest. Frá­sagnir í alræmdu sam­sæti á Klaustri um ein­hvers konar sam­komu­lag í þessa átt voru mér enda algjör­lega fram­andi, eins og ég hef þegar tjáð mig um.“

[adspot]Guð­laugur Þór segir ástæðu til að árétta að hann hafi ekki, á þeim tæp­lega tveimur árum sem hann hef gegnt emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra, skipað neina nýja sendi­herra við utan­rík­is­þjón­ust­una. „Það stendur ekki til af minni hálfu að gera breyt­ingu þar á í til­efni af fram­an­greindri mála­leitan for­manns Mið­flokks­ins. Má öllum hlut­að­eig­andi vera það ljóst.“

Bjarni Bene­dikts­son, stað­festi við fréttir Stöðvar 2 í gær­kvöldi, að Sig­mundur Davíð hefði rætt um áhuga Gunn­ars Braga Sveins­son­ar, á því að fara starfa erlendis á vegum Íslands, á fundi með honum og Guð­laugi Þór.

Þessi mál komu meðal ann­ars fram í umræðum þing­manna á Klaustur bar, 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, sem hafa dregið mik­inn dilk á eftir sér. Berg­þór Óla­son og Gunnar Bragi Sveins­son eru farnir í leyfi sem þing­menn Mið­flokks­ins og Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son hafa verið reknir úr Flokki fólks­ins.

Á vef Kvenna­blaðs­ins hafa verið birt nákvæm­ari upp­lýs­ingar um sam­tal Sig­mundar Dav­íðs af fundi hans með Bjarna og Guð­laugi Þór, en þær koma af upp­tök­unum frá Klaustur bar.

[adspot]Þar seg­ir, í end­ur­skrift af upp­tök­unn­i:

„Sig­mundur tekur við og stað­festir sög­una: „af því ég veit þetta er rétt. … Bjarni má eiga það, hann við­ur­kenndi það, að hann hefði … við sig. Að Bjarni, þegar ég hitti hann, við sátum hérna í klukku­tíma og áttum spjall. Bjarni fór út um víðan völl en nið­ur­staðan var sú að hann hefði fall­ist á það að ef þetta gengi upp þá ætti Gunnar inni hjá Sjálf­stæð­is­mönn­um.“

–„Eðli­lega“ segir Berg­þór.

„Já. Ókei,“ heldur Sig­mundur áfram. „Næsta skref var að hitta Bjarna með Gulla Þór, sem var í tygjum við Bjarna. Og við hitt­umst hér inni, sátum saman og … Bjarni má eiga það, að … hann fylgdi mál­inu eft­ir. Á dög­un­um. Við erum komnir í sam­skipti við menn. Gunnar Bragi bíður eftir nið­ur­stöðu. Nú þurfum við bara að klára hérna … Guð­laugur Þór …“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár