Sigmundur fundaði með Bjarna og Guðlaugi Þór vegna áhuga Gunnars Braga á sendiherrastöðu

Áhugi Gunnars Braga Sveins­sonar á sendi­herra­stöðu eða störfum erlendis barst í tal á fundi Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar með fjár­mála­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, stað­festi við fréttir Stöðvar 2 í kvöld, að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hefði rætt um áhuga Gunnars Braga Sveins­sonar, á því að fara starfa erlendis á vegum Íslands, á fundi með honum og Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, utan­rík­is­ráð­herra.

Bjarni sagði að fund­ur­inn hefði farið fram að frum­kvæði Sig­mundar Davíðs.

Þessi mál komu meðal ann­ars fram í umræðum þing­manna á Klaustur bar, 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, sem hafa dregið mik­inn dilk á eftir sér. Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveins­son eru farnir í leyfi sem þing­menn Mið­flokks­ins og Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son hafa verið reknir úr Flokki fólks­ins.

Á vef Kvenna­blaðs­ins hafa verið birt nákvæm­ari upp­lýs­ingar um sam­tal Sig­mundar Davíðs af fundi hans með Bjarna og Guðlaugi Þór, en þær koma af upp­tök­unum frá Klaustur bar.

Þar segir, í end­ur­skrift af upp­tök­unni:

„Sig­mundur tekur við og stað­festir sög­una: „af því ég veit þetta er rétt. … Bjarni má eiga það, hann við­ur­kenndi það, að hann hefði … við sig. Að Bjarni, þegar ég hitti hann, við sátum hérna í klukku­tíma og áttum spjall. Bjarni fór út um víðan völl en nið­ur­staðan var sú að hann hefði fall­ist á það að ef þetta gengi upp þá ætti Gunnar inni hjá Sjálf­stæð­is­mönnum.“

–„Eðlilega“ segir Bergþór.

„Já. Ókei,“ heldur Sig­mundur áfram. „Næsta skref var að hitta Bjarna með Gulla Þór, sem var í tygjum við Bjarna. Og við hitt­umst hér inni, sátum saman og … Bjarni má eiga það, að … hann fylgdi mál­inu eftir. Á dög­unum. Við erum komnir í sam­skipti við menn. Gunnar Bragi bíður eftir nið­ur­stöðu. Nú þurfum við bara að klára hérna … Guð­laugur Þór …“

Í fréttum Stöðvar 2 var Bjarni spurður að því, hvort að þessi fundur hefði farið fram, þar sem hann skuld­aði Fram­sókn­ar­flokknum eitt­hvað, vegna skipan Geirs H. Haarde sem sendi­herra, þá sagði hann það alls ekki vera svo. Hann hefði skýrt það, að ekk­ert slíkt væri á ferð­inni.

Fund­ur­inn með Sigmundi Davíð hefði verið að hans frum­kvæði og þar hefði þessi áhugi Gunnars Braga verið ræddur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár