Katrín: Rangt að ég hafi verið upplýst um skipan Geirs H. Haarde

For­sæt­is­ráð­herra segir það rangt að hún hafi verið upp­lýst um skipan Geirs H. Haarde fyr­ir­fram. Hún segir að Gunnar Bragi Sveins­son hafi hins vegar upp­lýst um skipan Árna Þórs Sig­urðs­sonar sem sendi­herra.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir það rangt að hún hafi verið upp­lýst um skipan Geirs H. Haarde fyr­ir­fram. Hún segir að Gunnar Bragi Sveins­son hafi hins vegar upp­lýst um skipan Árna Þórs Sig­urðs­sonar sem sendi­herra en að hann hafi ekk­ert minnst á Geir í því sam­hengi. Þetta kemur fram á Facebook-síðu hennar í dag.

Vísar hún með þessum orðum í hljóð­upp­töku af drykkju­fundi sex þing­manna Flokks fólks­ins og Mið­flokks­ins þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

„Gunnar Bragi hafði þá þegar tekið ákvörðun um skipan Árna Þórs en hann var þá þing­maður Vinstri-grænna. Ég kom ekki að þeirri ákvörðun og sótt­ist ekki eftir þessu starfi fyrir hönd Árna Þórs Sig­urðs­sonar. Ég taldi að ákvörðun þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra að upp­lýsa mig um ákvörðun sína hefði fyrst og fremst verið almenn kurt­eisi og mér til upp­lýs­ingar vegna stöðu Árna Þórs sem starf­andi þing­manns í þing­flokki Vinstri grænna. Skipan þess­ara sendi­herra var á ábyrgð utan­rík­is­ráð­herra eins og lög gera ráð fyrir,“ segir hún.

„Í þessum sam­ræðum sagð­ist Gunnar Bragi Sveins­son líka hafa átt við­skipti með sendi­herra­stöður í tengslum við sendi­herra­skipan Árna Þórs Sig­urðs­sonar og Geirs H. Haarde árið 2014 þegar hann gegndi emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra. Þar dró hann mitt nafn inn í þá umfjöllun. Rétt er að halda því til haga að Gunnar Bragi hefur lýst því yfir í kjöl­farið að þarna hafi ekki verið rétt greint frá máls­at­vikum en þeirri spurn­ingu hefur verið hreyft á opin­berum vett­vangi hver mín aðkoma og afstaða hafi verið til þessa máls.

Þó að eðli sam­tals­ins á Klaust­ur­barnum hafi verið þannig að ég bygg­ist ekki endi­lega við að þurfa að svara fyrir nokkuð af því sem þar kom fram er svarið ein­falt. Það var rangt með farið hjá Gunnari Braga Sveins­syni á Klaust­ur­barnum að ég hafi ekki gagn­rýnt skipan Geirs H. Haarde þar sem ég gerði það á sínum tíma opin­ber­lega eins og auð­velt er að finna með ein­faldri leit á net­inu. Ég taldi sér­stakt að hann hefði verið skip­aður sendi­herra á vegum íslenskra stjórn­valda sem hann átti þá í mála­ferlum við. Aðrir þing­menn og full­trúar Vinstri-grænna tjáðu sig reyndar líka um þessi mál,“ segir hún í færslu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár