Bréf í Icelandair hrynja annan daginn í röð - Allt annað grænt

Hluta­bréfa­verð í Icelandair hefur lækkað mikið frá því að mark­aðir opn­uðu í morgun. Að öðru leyti er kaup­höllin græn og sum félög hafa hækkað skarpt. Mesta hækk­unin er hjá elds­neyt­is­sala WOW air.

Gengi bréfa í Icelandair Group hefur fallið um 13,16 pró­sent það sem af er degi. Bréfin féllu líka um svipað hlut­fall í gær í kjöl­far þess að til­kynnt var um að félagið væri hætt við að kaupa WOW air. Öll önnur félög sem skráð eru í Kauphöll Íslands hafa hækkð umtals­vert í verði, að HB Granda und­an­skildu en engin við­skipti hafa verið með bréf þess félags í dag.

[links]Mest hafa bréf í Festi hækkað, um rúm­lega tíu pró­sent, en félagið er elds­neyt­is­sali WOW air. Bréf í Festi höfðu lækkað umtals­vert í gær en nú hefur orðið algjör við­snún­ingur á. Þar skiptir mestu að til­kynnt var um það í gær­kvöldi að banda­ríska félagið Indigo Partners ætl­aði sér að kaupa hlut í WOW air.

Tilkynnt var um kaup Icelandair á WOW air 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þann dag hækk­aði virði hluta­bréfa í Icelandair um rúm­lega 39 pró­sent. Sú hækkun er nú að lang­mestu leyti gengin til baka og virði bréfa í félag­inu í síð­ustu við­skiptum var 8,42 krónur á hlut. Það er ein­ungis 6,6 pró­sent hærra verð en var bréf­unum í upp­hafi þess dags sem til­kynnt var um kaupin á WOW air, sem nú hefur verið fallið frá.

[adspot]Kjarninn greindi frá því í morgun að grein­ingar og áreið­an­leikak­ann­anir sem Icelandair Group lét fram­kvæma vegna fyr­ir­hug­aðra kaupa á WOW air hafi leitt í ljós að við­skiptin stóð­ust ekki þær for­sendur sem gerðar voru við und­ir­ritun kaup­samn­ings­ins. Þetta kom fram í kynn­ingu sem farið var yfir á hlut­hafa­fundi Icelandair Group í dag, 30. nóv­em­ber, og birt hefur verið í til­kynn­inga­kerfi Kaup­hallar Íslands.

Helstu for­sendur kaup­samn­ings Icelandair Group á WOW air, sem nú hefur verið fallið frá, voru þær að sam­komu­lag myndi nást við leigu­sala WOW air, að stað­fest­ing myndi fá á því að for­gangs­réttur flug­manna myndi ekki eiga við um flug­menn WOW air og að sam­komu­lag myndi nást við skulda­bréfa­eig­endur WOW air. Ekk­ert af þessu var leitt til lykta áður en að ákveðið var að hætta við kaup­in. Þá var sér­stakur fyr­ir­vari um nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­un­ar, sem Deloitte og Logs fram­kvæmdu. Það grunn­mat liggur fyrir en er trún­að­ar­mál en í kynn­ing­unni segir að „fyrstu nið­ur­stöður gáfu til kynna meiri fjár­þörf en gert var ráð fyrir auk ann­arra atriða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár