Icelandair þrýstir á að skuldabréfaeigendur WOW air taki á sig afskriftir

Staða WOW air er þrengri en talið var sam­kvæmt drögum að áreið­an­leika­könnun um rekstur félags­ins sem lá fyrir í gær. Hlut­hafa­fundur Icelandair Group fer fram í fyrra­málið en grein­andi Lands­bank­ans segir það ekki koma á óvart ef fund­inum verði frestað.

Drög að áreið­an­leika­könnun á rekstri WOW lágu fyrir í gær en drögin sýndu að rekstr­ar­staða flug­fé­lags­ins hefur þrengst veru­lega frá því að samn­ingur um kaup Icelandair Group á öllu hlutafé félags­ins var und­ir­rit­aður þann 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Dregið hefur úr far­miða­bók­unum sem aftur hefur áhrif á lausa­fjár­stöðu félags­ins. Fjár­mála­stjóri WOW air til­kynnti sér­stak­lega í gær að starfs­fólki félags­ins yrðu greidd laun um mán­aða­mótin. Á sama tíma hefur reynst erfitt að fá kröfu­hafa félags­ins til þess að gefa eftir í þeirri við­leitni að greiða fyrir söl­unni en nú þrýstir Icelandair á WOW air að standi undir tals­vert minni hluta af höf­uð­stól skulda­bréfa­eig­anda WOW air.

Hlut­hafa­fundur Icelandair Group verður hald­inn í fyrra­málið en þar mun stjórn félags­ins ann­að­hvort leggja til að til­laga um kaup félags­ins á öllu hlutafé WOW air verði sam­þykkt eða henni synjað. Endanleg afstaða stjórn­ar­innar mun aftur á móti ráð­ast á stjórn­ar­fundi í kvöld.

Drög að áreiðanleikakönnun

[links]Fjallað var um í fjöl­miðlum í gær hvernig Skúli Mog­ens­sen, for­stjóri og eig­andi WOW air, hefur þrýst á kröfu­hafa félags­ins að liðka fyrir kaupum Icelandair en sam­kvæmt umfjöllun Morg­un­blaðs­ins í dag þá hefur reynst erfitt að fá kröfu­hafa félags­ins til þess að gefa eftir í þeirri við­leitni að greiða fyrir söl­unni. Mun það m.a. standa í þeim að hlut­deild selj­anda félags­ins sé tryggð með afhend­ingu 1,8 pró­sent hlutar í Icelandair Group, gangi salan eftir.

Nið­ur­stöður áreið­an­leika­könn­un­ar­innar benda hins vegar ótví­rætt til þess að hlut­deild selj­anda í öðru gagn­gjaldi, sem að hámarki hefði getað orðið 5,4 pró­sent verði í raun 0 pró­sent við frá­gang við­skipt­anna. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Fjárfestar taki á sig tugprósenta afskriftir

Skulda­bréfa­eig­endur WOW air, sem fjár­festu fyrir sam­tals 60 millj­ónir evra, jafn­virði 8,5 millj­arða króna, í skulda­bréfa­út­boði flug­fé­lags­ins sem lauk um miðjan sept­em­ber, gætu þurft að sam­þykkja tug­pró­senta afskriftir af höf­uð­stól sínum eigi fyr­ir­huguð kaup Icelandair Group á WOW air að ná fram að ganga. Frá þessu er greint í Mark­að­inum í dag.

Samkvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins þrýstir Icelandair nú mjög á að WOW air taki á sig tals­vert minni hluta skuld­bind­ing­ar­innar, eða mögu­lega í kringum 70 pró­sent af höf­uð­stól bréf­anna í stað 90 pró­senteins en áður hafði verið gert ráð fyrir.

Icelandair greiði lægra en 90 prósent

Í bréfi WOW air til skulda­bréfa­eig­enda félags­ins, dag­settu 9. nóv­em­ber, kom fram að það væri skil­yrði fyrir yfir­töku Icelandair að kaup­réttur þeirra að hlutafé í félag­inu verði felldir niður. Þess í stað myndi WOW air bjóð­ast til að greiða skulda­bréfin á loka­gjald­daga haustið 2021 með tutt­ugu pró­senta þóknun ofan á höf­uð­stól­inn.

Þau áform fólu þá í sér að Icelandair myndi standa undir 90 pró­sentum af höf­uð­stól skuld­anna og Skúli Mogensen, for­stjóri og eini hlut­hafi WOW air, greiði það sem upp á vantar með þeim hluta­bréfum sem hann kann að eign­ast í sam­ein­uðu félagi. Nú mun Icelandair hins vegar hafa sett fram það skil­yrði að greiðsla félags­ins til skulda­bréfa­eig­enda WOW air verði nokkuð lægri en 90 pró­sent og þá er veru­leg óvissa um hvort Skúli geti bætt kröfu­höfum félags­ins upp mis­mun­inn. Nið­ur­staða áreið­an­leika­könn­unar mun leiða í ljós hve stóran hlut Skúli mun fá afhentan í sam­ein­uðu félagi en hann getur verið á bil­inu 1,8 til 6,6 pró­sent. Þetta kemur fram í umfjöllun Mark­að­ar­ins.

Íslenskir fjár­festar voru með 37 pró­sent af heild­ar­eft­ir­spurn­inni í skulda­bréfa­út­gáfu WOW air í sept­em­ber eða sem nemur um 22 millj­ónum evra. Tveir sjóðir í stýr­ingu GAMMA Capital Mana­gement fjár­festu til dæmis fyrir sam­an­lagt tvær millj­ónir evra. Banda­rískir fjár­festar keyptu um fjórð­ung­inn af útgáf­unni og fjár­festar frá Norð­ur­lönd­unum 19 pró­sent á meðan afgang­ur­inn – um 19 pró­sent – var seldur til ann­arra fjár­festa í Evrópu.

Þurfi góð rök fyrir hlutafjáraukningu ef ekki verður af kaupum á WOW air.

Sveinn Þór­ar­ins­son grein­andi hjá Hag­fræði­deild Íslands segir í sam­tali við Mark­að­inn að það kæmi sér ekki á óvart ef hlut­hafa­fundi Icelandair, sem á að eiga sér stað á morgun, yrði frestað en hann segir hlut­hafar hafi litlar upp­lýs­ingar um stöðu WOW air.

Tvær til­lögur liggja fyrir hlut­hafa­fundi Icelandair Group. Annars vegar hluta­fjár­aukn­ing vegna sam­runa við WOW air og hins vegar óskil­greind hluta­fjár­aukn­ing. Sveinn segir að hluta­fjár­aukn­ing gæti verið sam­þykkt óháð sam­runa Icelandair við WOW air til að bæta stöð­una gagn­vart skulda­bréfa­eig­endum félags­ins. En hann segir þá aukn­ingu þó duga skammt en hún myndi að m.a. sýna skulda­bréfa­eig­endum að hlut­hafar standa við bakið á félag­inu. Icelandair Group hefur fengið tíma­bundnar und­an­þágur gagn­vart lána­skil­málum. „En stjórn­endur Icelandair þurfa að færa sann­fær­andi rök fyrir hluta­fjár­aukn­ingu enda er verið að þynna út hlut­hafa sem ekki taka þátt í henni,“ segir Sveinn jafn­framt.

Sveinn segir að hluta­fjár­aukn­ingu þurfi ekki að svo stöddu en hann nefnir að fyr­ir­tækið muni tapa á bil­inu 50 til 60 millj­ónum dala í ár og ef far­miða­verð hækkar ekki þá verði næsta ár einnig erfitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár