Íslandspóstur reynir að „keppa við allt sem hreyfist“

Ólafur Steph­en­sen segir að nán­ustu trún­að­ar­menn stjórn­mála­manna sitji í stjórn Íslands­póst og hafi skrifað upp á útþenslu fyr­ir­tæk­is­ins. Því vantar nú einn og hálfan millj­arð króna úr rík­is­sjóði vegna rekstr­ar­erf­ið­leika. Hann vill óháða úttekt á post­inum.

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, segir að sam­keppn­is­rekstur Íslands­pósts sé orð­inn með hreinum ólík­indum. Það sé eins og stjórn fyr­ir­tæk­is­ins hafi mis­skilið eig­enda­stefnu rík­is­ins fyrir þau félög þar sem ríkið á hlut, þar sem stendur að þau félög skuli stuðla að sam­keppni. „Það er eins og að stjórn Íslands­pósts hafi mis­skilið þetta þannig að hún eigi að keppa við allt sem hreyf­ist helst[...]„Ef maður fer í póst­hús þá er það í sam­keppni við sjopp­una í næstu götu, við bóka- og rit­fanga­versl­un­ina, við leik­fanga­búð­ina, við minja­gripa­versl­un­ina, af því að póst­ur­inn er kom­inn á fullt í smá­sölu á öllum þessum vörum.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýnt verður í kvöld klukkan 21:00. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Íslands­póstur hefur varið tæp­lega sex millj­örðum króna í fjár­fest­ingar á síð­ustu tólf árum. Þeim fjár­munum hefur meðal ann­ars verið varið í að kaupa upp fyr­ir­tæki á nýjum sam­keppn­is­mörk­uðum eða skapa fyr­ir­tæk­inu stöðu á slíkum. Sú sam­keppni er meðal ann­ars við fyr­ir­tæki í aldreif­ingu á pósti á borð við aug­lýs­inga­bréfum, í hug­bún­að­ar­gerð, í frakt­flun­ingum, í sendi­bíla­þjón­ustu, í send­la­þjón­ustu og prent­smiðju­rekstri „Þetta nær ekki nokk­urri átt að eitt­hvað rík­is­fyr­ir­tæki, með með­gjöf í formi einka­réttar á létt­ustu bréf­unum, sé svo í svona víð­tækri sam­keppni við einka­fyr­ir­tæki. Öllum þessum mörk­uðum er prýði­lega sinnt,“ segir Ólafur.

[adspot]Hann telur að það hafi vantað upp á að stjórn­völd hafi sett þess­ari hegðun ein­hverjar hömlur. „Þvert á móti sitja nán­ustu trún­að­ar­menn stjórn­mála­manna í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins og skrifa upp á þetta allt saman. Það er nátt­úru­lega mik­ill ábyrgð­ar­hluti.“ Þar vísar Ólafur meðal ann­ars til þess að Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, situr í stjórn Íslands­pósts.

Hann bendir einnig á að svo virð­ist vera að sam­keppn­is­rekst­ur­inn sem Íslands­póstur hefur ráð­ist í gangi alls ekki vel.

[links]Ein birt­ing­ar­mynd þess er sú að Íslands­póstur hefur farið fram á að fá 1,5 millj­arða króna lán úr rík­is­sjóði sem er nú til umfjöll­unar við afgreiðslu Alþingis á fjár­lögum næsta árs. „Við erum alveg sann­færð um að það greiðslu­þrot sem stefnir í er að hluta til að minnsta kosti vegna rangra ákvarð­ana í þessum sam­keppn­is­rekstri. Það er eng­inn opin­ber stofnun sem lítur á það sem hlut­verk sitt að kveða upp úr um það hvort það fari á svig við lög að færa pen­inga á milli einka­réttar og sam­keppn­is­rekstrar“

Félag atvinnu­rek­enda hefur farið fram á það við sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið að fram­kvæmd verði óháð úttekt á starf­semi Íslands­pósts. „Eina leiðin sem þing­menn, sem eiga að skuld­binda einn og hálfan millj­arð af okkar pen­ingum, inn í þessa hít sem þessi rekstur virð­ist vera að verða, eina leiðin fyrir þá að fá skýr svör við spurn­ingum um það hvaða ákvarð­anir hafa verið teknar á und­an­förnum árum og hverjir bera á byrgð á þeim er að það verði gerð ein­hvers­konar óháð úttekt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár