Ólíklegt að fyrirvarar í kaupsamningi á WOW air verði uppfylltir

Icelandair Group telur ólík­legt að fyr­ir­varar í kaup­samn­ingi á öllum hlutum í WOW air verði upp­fylltir fyrir hlut­hafa­fund sem á að sam­þykkja kaupin. Við­skipti með bréf í félag­inu voru stöðvuð í morgun en þau eru nú hafin að nýju.

Ólíklegt er að allir fyr­ir­varar sem settir voru í kaup­samn­ing Icelandair Group á WOW air verði upp­fylltir fyrir hlut­hafa­fund í félag­inu næst­kom­andi föstu­dag. Á dag­skrá fund­ar­ins er til­laga um að sam­þykkja kaupin. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Icelandair Group sendi Kauphöll rétt í þessu.

Þar segir enn fremur að áfram verði „unnið í mál­inu og við­ræður standa yfir milli samn­ings­að­ila um fram­gang máls­ins.“

Fjár­mála­eft­ir­litið ákvað í morgun að stöðva tíma­bundið við­skipti með fjár­mála­gern­inga Icelandair Group sem teknir hafa verið til við­skipta á aðal­mark­aði Nasdaq OMX Iceland hf. Í til­kynn­ingu frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu kemur fram að ákvörð­unin var tekin til að vernda jafn­ræði fjár­festa. Opnað var aftur fyrir við­skipti með bréfin klukkan 12:30 í dag.

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem við­­skipti með bréf í Icelandair Group eru stöðv­­uð, en það gerð­ist einnig þegar félagið til­­kynnti um kaup á WOW air fyrr í mán­uð­in­­um. Þá voru við­­skiptin reyndar ekki stöðvuð strax og virði bréfa í félag­inu hafði hækkað um tugi pró­­senta áður en stöðv­­unin var fram­­kvæmd. Þannig var málum ekki háttað í morgun og lítil við­­skipti höfðu átt sér stað með bréf í Icelandair Group það sem af er degi, eða fyrir 25 millj­­ónir króna. Bréfin höfðu hækkað um 1,88 pró­­sent það sem af er degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár