Búast má við skipulagsbreytingum og hærra flugmiðaverði

Vonast er til að tölu­verð sam­legð­ar­á­hrif skap­ist við kaup Icelandair á WOW air, sem meðal ann­ars verður hægt að ná fram með hag­ræð­ingu í starfs­manna­fjölda og betri nýt­ingu á starfs­fólki.

Gangi kaup Icelandair Group á WOW air eftir má búast við því að flug­miða­verð hækki og að ráð­ist verði í skipu­lags­breyt­ingar innan sam­ein­aðar sam­stæðu. Slíkum breyt­ingum myndu fylgja sam­legð­ar­á­hrif sem náð yrði fram með hag­ræð­ingu, meðal ann­ars fækkun starfa. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarnans um sam­ein­ing­una sem birt var í gær.

[links]Morg­un­blaðið greinir svo frá því í morgun að vegna for­gangs­rétt­ar­á­kvæðis í samn­ingum við Icelandair gætu félags­menn í Félagi íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA) átt for­gang á flug í flug­vélum WOW air. Það myndi þýða að flug­menn sem vinna hjá WOW air yrðu á sama kjara­samn­ingi og flug­menn Icelandair, en sem stendur eru þeir í sér stétt­ar­fé­lagi. Samkvæmt samn­ingi FÍA við Icelandair getur félagið ekki stofnað sér­stakt lág­far­gjalda­flug­fé­lag þar sem flug­menn fá önnur kjör en þeir sem fljúga fyrir móð­ur­fé­lagið. Sama hljóti þá að eiga við ef Icelandair yfir­tekur slíkt lág­far­gjalda­flug­fé­lag.

Morg­un­blaðið segir að það sé erfitt að sjá hvernig sam­ein­ing félag­anna tveggja ætti að ganga upp ef flug­menn WOW air njóti sömu starfs­kjara og kollegar þeirra hjá Icelandair, þar sem nýt­ing á flug­mönnum WOW air sé mun betri eins og stendur.

Icelandair búið að glíma við umtalsverðan vanda

Icelandair hefur sjálft átt í umtals­verðum rekstr­ar­vand­ræðum und­an­farin miss­eri. Breyt­ingar á leið­ar­kerfi og mark­aðs­starfi sem ráð­ist var í í fyrra reynd­ust afleitar og vegna fyrstu tveggja fjórð­unga árs­ins voru sendar afkomu­við­var­anir vegna þess að nið­ur­staða þeirra var langt undir vænt­ing­um. Þessi staða gerði það að verkum að Björgólfur Jóhanns­son, sem hafði verið for­stjóri Icelandair í tíu ár, sagði af sér í lok ágúst. Með því vildi hann axla ábyrgð á ofan­greindum breyt­ing­um, sem teknar höfðu verið á hans vakt.

[adspot]Vegna þessa hríð­féll mark­aðsvirði Icelandair. Það var um 189 millj­arðar króna fimmtu­dag­inn 28. apríl 2016 en var 38 millj­arðar króna þegar til­kynnt var um kaupin á WOW air.

Það sem var jákvætt var að Icelandair hafði byggt upp umtals­vert eigið fé á síð­ustu árum og var því ágæt­lega í stakk búið til að takast á við sveifl­ur. Eigið fé í lok sept­em­ber var um 70 millj­arðar króna, en hafði lækkað um 2,6 millj­arða króna það sem af var ári. Þessi staða gerði það að verkum að Icelandair braut skil­mála skulda­bréfa­flokka sem félagið hafði gefið út og er sem stendur í við­ræðum við eig­endur þeirra um að end­ur­semja vegna þessa. Stærstu hlut­hafar félags­­ins eru íslenskir líf­eyr­is­­sjóð­ir, en stærsti hlut­haf­inn er Líf­eyr­is­­sjóður versl­un­­ar­­manna með 13,99 pró­­sent hlut.

Töluverð samlegðaráhrif

Við­mæl­endur Kjarnans segja að það séu tölu­verð sam­legð­ar­á­hrif sem skap­ist við kaupin á WOW air, sem meðal ann­ars verður hægt að ná fram með hag­ræð­ingu í starfs­manna­fjölda. Mark­aðs­starf síð­ar­nefnda félags­ins á net­inu sé auk þess mjög gott og bók­un­ar­kerfi þess hag­kvæmt. En það býst eng­inn sem við er rætt við öðru en að seglin verði dregin veru­lega saman, vélum sem eru á leigu verði skilað og starfs­fólki fækkað.

Óhjá­kvæmi­legt sé að flug­miða­verð fari í kjöl­farið hækk­andi. Þá megi búast við því að upp­stokkun verði á skipu­lagi innan Icelandair Group þegar og ef yfir­takan á WOW air gengur í gegn.

Fréttin er að mestu unnin upp úr hlið­ar­efni með frétta­skýr­ingu Kjarnans um kaup Icelandair Group á WOW air sem birt­ist í gær, föstu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár