„Síðustu 72 klukkutímar hafa verið þeir erfiðustu í mínu lífi“

Skúli Mogensen tjáir sig um sölu WOW air til Icelandair Group.

Skúli Mogensen.
Skúli Mogensen. Mynd: Kjarninn.

Skúli Mogensen for­stjóri WOW air telur að ákvörð­unin um að selja WOW hafi verið rétt til að tryggja fram­tíð flug­fé­lags­ins. Frá þessu greinir hann á facebook-síðu sinni í dag. 

[links]Hann segir að síð­ustu 72 klukku­tímar hafi verið þeir erf­ið­ustu í lífi hans þar sem hann hafi þurft að ákveða fram­tíð WOW air í ljósi ein­stak­lega erf­iðra tíma.

Stjórn Icelandair Group gerði kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé í flug­fé­lag­inu WOW air en fréttir þess efnis birt­ust í gær. Kaupin eru meðal ann­ars gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar Icelandair Group, sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar.

Skúli segir í stöðu­upp­færslu sinni að aug­ljós­lega hafi þetta ekki upp­haf­lega verið áætlun hans né sú sýn sem hann hafði fyrir WOW air. „En miðað við aðstæður von­ast ég til að tryggja fram­tíð WOW air til lang­frama, hins ótrú­lega starfs­fólks sem vinnur þar, far­þega okkar og ekki síst er þetta tæki­færi til að byggja upp far­sæla sjálf­bæra ferða­þjón­ustu á Íslandi.“

Hann segir enn fremur að WOW Air vöru­merkið muni lifa áfram sem lággjalda­flug­fé­lag í fremstu röð. „Icelandair hefur verið braut­ryðj­andi á íslenskum flug­mark­aði í 80 ár og byggt upp gott net og ég er sann­færður um að með vöru­merkj­unum tveimur og sam­vinnu geti þessi tvö fyr­ir­tæki haldið áfram að bæta og byggja upp sterkt sjálf­bært alþjóð­legt flug­fé­lag sem muni dafna í sífellt sam­keppn­is­hæf­ara flug­um­hverfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár