Ritstjóri Morgunblaðsins kallar eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um þriðja orkupakkann

Vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins er harð­lega gagn­rýnd í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í dag. Þar er inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans svo­kall­aða enn og aftur líkt við Icesave-málið.

Í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í dag er Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, harð­lega gagn­rýnd fyrir að vera „merk­is­beri“ inn­leið­ingu þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins.

Þar segir að rík­is­stjórnin, sem sam­anstendur af Vinstri grænum, Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum, sýni af sér „ein­dreg­inn brota­vilja varð­andi „þriðja orku­pakk­ann“ og pantar sér ótæk „lög­fræði­á­lit“ til rétt­læt­ingar. Í minni er hve auð­keyptir „sér­fræð­ingar“ voru í hinu ömur­lega Icesavemáli. Ekkert hefur laskað Sjálf­stæð­is­flokk­inn eins og það mál. Og orku­pakk­inn, „Icesave, taka tvö,“ er skrítn­ara, og það að horfa á vara­for­mann flokks­ins ger­ast þar merk­is­beri! Það veldur óend­an­legum von­brigðum. Við blasir að vísa því máli til þjóð­ar­innar.“

Rit­stjórnar Morg­un­blaðs­ins eru Haraldur Johann­es­sen og Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mál­flutn­ing­ur­inn í leið­ar­anum ber þess öll merki að Davíð hafi skrifað hann, enda mjög í takt við fyrri skrif hans í rit­stjórn­ar­greinum Morg­un­blaðs­ins um hinn svo­kall­aða þriðja orku­pakka.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Davíð gagn­rýnir Þórdísi Kolbrúnu sér­stak­lega vegna máls­ins. Það gerði hann líka í sept­em­ber í leið­ara þar hann sagði Þórdísi Kolbrúnu hafa látið rugla sig í rím­inu. Hann sagði líka að: „Erfitt væri að ímynda sér að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins muni standa að þessu máli, að minnsta kosti ekki þeir fáu sem hlupust ekki undan merkjum í Icesave.“

Sagðist hlusta á gagnrýni

Þórdís Kolbrún ræddi þriðja orku­pakk­ann í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í nýliðnum mán­uði. Hægt er að sjá við­talið við hana hér að neðan. Umræður um orku­pakk­ann eru í upp­hafi þess.

Þar sagð­ist hún hlusta á gagn­rýni um málið en benti á að Ísland hafi aldrei ákveðið að aflétta ekki stjórn­skipu­legum fyr­ir­vara til að inn­leiða til­skipun frá Evr­ópu­sam­band­inu. „Það er engin hræðslu­á­róður að segja að við vitum ekki hvert það leiðir okk­ur. Vegna þess að ég hef engan heyrt svara því[...]„Ég er ekki sann­færð um að þetta sé slagur sem við eigum að taka, um efni máls, það er þessa þriðja orku­pakka. Að við ætlum ekki að aflétta stjórn­skip­un­ar­legum fyr­ir­vara.“

Þór­dís Kol­brún sagði enn fremur að það verði að koma í ljós hvað þing­menn flokks­ins geri í mál­inu. „Ég segi bara að okkur liggur ekk­ert á að afgreiða þetta mál. Þessi umræða hún truflar mig ekk­ert. Mér finnst hún fín ef hún á end­anum leiðir til þess að við komumst lengra í að ræða það sem málið snýst um. Það eru auð­vitað skiptar skoð­anir innan allra stjórn­ar­flokk­anna um þetta mál.“

Tveir sérfræðingar segja áhrifin nær engin

Í minn­is­­blaði sem lög­­­­­mað­­­ur­inn Ólafur Jóhannes Ein­­­ar­s­­­son, áður fram­­­kvæmda­­­stjóri hjá Eft­ir­lits­­­stofnun EFTA (ESA), gerði fyrir Þór­­­dísi Kol­brúnu, og birt var opin­ber­­­lega 17. apr­íl, kom skýrt fram að þriðji orku­­­pakk­inn haggi í engu heim­ildum íslenskra stjórn­­­­­valda til að banna fram­­­sal á eign­­­ar­rétti að orku­auð­lindum og rétti Íslands til að ákveða með hvaða skil­yrðum orku­auð­lindir lands­ins eru nýtt­­­ar.

Í sept­em­ber vann svo lög­mað­ur­inn Birgir Tjörvi Pét­­ur­s­­son grein­ar­gerð þar sem fjallað var um hinn svo­­kall­aða þriðja orku­­pakka Evr­­ópu­­sam­­bands­ins og komst að því að hann kalli ekki á end­ur­skoðun EES.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár