Olíunotkun eykst þrátt fyrir allt - Verðið hækkar hratt

Olíu­mark­að­ur­inn er til umfjöll­unar í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar.

Olíuverð hefur farið hratt hækk­andi und­an­farin miss­eri og það veldur vand­ræðum víða í heim­inum, meðal ann­ars á Íslandi. Verð­bólgu­þrýst­ingur hefur auk­ist og flug­fé­lög glíma við erf­ið­ari rekstr­ar­skil­yrði, svo dæmi sé tekið.

Í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar eru olíu­mark­að­ur­inn í heim­inum til umfjöll­unar. Ketill Sig­ur­jóns­son, lög­fræð­ingur og MBA og sér­fræð­ingur á sviði orku­mála, fjallar ítar­lega um horfur á olíu­mark­aði, en olíu­notkun er þrátt fyrir allt enn að aukast.

„Um þessar mundir er dag­leg olíu­notkun mann­kyns að ná hinni dramat­ísku tölu 100 millj­ónum tunna. Vissu­lega er aðeins farið að hægja á aukn­ing­unni í olíu­notkun frá því sem var, en engu að síður er olíu­neysla enn að aukast. Og flestir sér­fróðir virð­ast álíta að olíu­notkun haldi áfram að aukast næstu árin og ára­tug­ina. Eini mögu­leik­inn á því að eft­ir­spurn eftir olíu drag­ist saman, virð­ist sá að spár um stór­fellda aukn­ingu raf­bíla verði að veru­leika. Ennþá bendir flest til þess að sú þróun sé það hæg að mann­kynið muni áfram auka olíu­neyslu sína umtals­vert. Og ekki ná hámarki í olíu­notkun sinni fyrr en kannski eftir svona u.þ.b. ald­ar­fjórð­ung. Sumir spá því þó að hápunkti olíu­notk­unar verði náð fyrr og það jafn­vel strax á næsta ára­tug.

Olíu­notkun í heim­inum fer sem sagt ennþá vax­andi og lík­legt að svo verði áfram í ein­hver ár og jafn­vel ára­tugi. Enda fjölgar mann­kyn­inu og hrá­olía er jú afar mik­il­væg sem upp­spretta bruna­elds­neytis fyrir stóra sem smáa bíla, vinnu­vélar, skip og flug­vélar og sem hrá­efni í margs­konar iðn­aði. Og á sama tíma og dag­leg olíu­neysla mann­kyns er komin yfir sem jafn­gildir 100 millj­ónum tunna, er olía enn á ný orðin nokkuð dýr.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár