Bætt velferðarkerfi, minni fátækt og meiri jöfnuður mikilvægustu málefni þjóðarinnar

Mik­il­væg­ustu mál­efni þjóð­ar­innar þessa dag­ana eru bætt vel­ferð­ar­kerfi og minni fátækt en lands­mönnum þykir bætt mót­taka flótta­manna ekki mik­il­væg sam­kvæmt nýrri könnun.

Íslend­ingum þykir bæt­ing vel­ferð­ar­kerf­is­ins og auk­inn jöfn­uður í sam­fé­lag­inu mik­il­væg­ustu mál­efnin sam­kvæmt nýrri könnun EMC. Í henni var kannað hvað Íslend­ingar teldu vera mik­il­væg­ustu mál­efnin um þessar mundir, en úrtakið var 800 manns.

Flestir nefndu bæt­ing vel­ferð­ar­kerf­is­ins sem mik­il­væg­asta mál­efnið eða 64,1 pró­sent í heild­ina. Fast á hæla þess þótti mál­efnið að draga úr fátækt og auka jöfnuð í sam­fé­lag­inu mik­il­væg­ast eða rúm­lega 60 pró­sent. Þar á eftir kom skyn­sam­leg nýt­ing nátt­úru­auð­linda, verndun umhverf­is­ins og tak­mörkun spill­ingar. Málefnið sem skor­aði lægst er bætt mót­taka flótta­manna með aðeins 17,6 pró­sent. Aðeins 19,3 pró­sent sögðu auk­inn hag­vöxt mik­il­væg­asta mál­efnið.

Töluverðan mun má greina á afstöðu fólks eftir bak­grunns­breytum en breyt­urnar voru kyn, búseta, ald­urs­hópur og hvað mynd­iru kjósa núna. Konur eru líklegri en karlar til að nefna umhverf­ismál, takmörkun spill­ingar, aukið kynja­jafnrétti og minnkun fíkni­efna­notk­unar. Yngra fólk leggur meiri áherslu en það eldra á bætt vel­ferð­ar­kerfi, umhverf­ismál, lækkun skatta og aukið jafnrétti kynj­anna.

Talsverður munur eftir flokkum

Áhuga­vert er að sjá að í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar voru mik­il­væg­ustu mál­efn­inin annað hvort bæt­ing vel­ferð­ar­kerf­is­ins eða að draga úr fátækt/auka jöfnuð hjá öllum flokkum.

Þeim flokki sem fannst mik­il­væg­asta að lækka skatta er Flokkur fólks­ins eða um 66 pró­sent. Það mál­efni þótti einnig mik­il­vægt hjá stuðn­ings­mönnum Mið­flokks­ins eða um 54 pró­sent og hjá Sjálf­stæð­is­flokknum þóttu 43,5 pró­sent þeirra sem myndu kjósa flokk­inn það mik­il­væg­ast að lækka skatta.

Rúmlega helm­ingur stuðn­ings­manna Mið­flokks­ins þótti mik­il­væg­ast að tak­marka fjölda inn­flytj­enda eða 52,5 pró­sent. En það að tak­marka inn­flytj­endur þótti aðeins 4 pró­sent stuðn­ings­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar mik­il­væg­ast.

Takmörkun spillingar mikilvæg

Lands­mönnum þótti einnig mál­efnið tak­mörkun spill­ingar mik­il­vægt en í heild­ina svör­uðu 49 pró­sent því sem einu af mik­il­væg­ustu mál­efn­unum. Það þótti mik­il­væg­ast hjá stuðn­ings­mönnum Pírata 67,7 pró­sent en það þótti einnig mjög mik­il­vægt hjá Flokki Fólksins eða 64,2 pró­sent.

Píratar og stuðn­ings­menn VG leggja mestu áherslu á jafn­rétti kynj­anna. Stuðn­ings­menn Sam­fylk­ing­ar­innar ásamt stuðn­ingsfólki Við­reisnar og Pírata leggja mesta áherslu á skyn­sam­lega nýtingu náttúrauð­linda.

Stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Mið­flokks­ins lögðu mikla áherslu á minnkun fíkni­efna­notk­unar en á hinn bóg­inn þótti Píratar ólík­leg­astir til að telja mik­il­væg­ast að draga úr fíkni­efna­notkun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár