Áföll í flugrekstri ógna ekki fjármálastöðugleika

Fjár­mála­stöð­ug­leika­ráð fjall­aði um þann mót­vind sem íslenskir flug­rek­endur hafa verið í á síð­asta fundi sínum. Ráðið telur að mögu­leg áföll þeirra muni ekki ógna fjár­mála­stöð­ug­leika.

Seðlabankastjóri, fjármála- og efnahagsráðherra og forstjóri Fjármálaeftirlitsins sitja í fjármálastöðugleikaráði.
Seðla­banka­stjóri, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sitja í fjár­mála­stöð­ug­leika­ráði. Mynd: Samsett

Fjár­mála­stöð­ug­leika­ráð telur að mögu­leg áföll í flug­geir­anum myndu ekki ógna fjár­mála­stöð­ug­leika á Íslandi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins um það sem fjallað var um á fjórða fundi sínum á þessu ári, sem fram fór síð­ast­lið­inn föstu­dag.

[links]Í ráð­inu sitja Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri og Unnur Gunn­ars­dóttir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Í til­kynn­ing­unni segir að inn­lendir flug­rek­endur hafi lent í „mót­vindi und­an­farna mán­uði“ en að mögu­leg áföll þeirra myndu ekki ógna fjár­mála­stöð­ug­leika. „Þá er geta þjóð­ar­bús­ins til að takast á við áföll góð, m.a. vegna góðrar ytri stöðu, stórs gjald­eyr­is­forða og sögu­lega lágrar skulda­stöðu hins opin­bera og einka­að­ila.“

WOW air bjargaði sér fyrir horn en Primera féll

Stóru íslensku flug­fé­lögin tvö, WOW air og Icelandair, hafa bæði átt í vand­ræðum upp á síðkastið og það sér ekki fyrir end­ann á því ennþá, þrátt fyrir að WOW air hafi bjargað sér að minnsta kosti tíma­bundið fyrir horn nýverið með því að útvega 60 millj­ónir evra, eða um 7,7 millj­arða króna, í skulda­bréfa­út­boði.

[adspot]Þá fór Primera Air, sem er í íslenskri eigu, í greiðslu­stöðvun í síð­ustu viku, nokkrum vikum eftir að eig­andi þess, Andri Már Ing­ólfs­son sagði við Morg­un­blaðið að Primera Air væri við það að loka skulda­bréfa­út­boði upp á 40 millj­ónir evra, um 5,2 millj­arða króna, með þátt­töku alþjóð­lega fjár­festa.

WOW air vinnur nú að því að afla meira fjár og verða skráð á markað eins fljótt og hægt er, og eru Arctica Finance og Arion banki að vinna að því ferli með fyr­ir­tæk­inu.

Icelandair í viðræðum við skuldabréfaeigendur

Icelandair hefur verið rekið með tapi síð­ustu miss­eri og félagið hefur birt afkomu­við­var­anir í Kauphöll Íslands vegna þess að áætl­anir þess hafa ekki stað­ist.

Í síð­ustu viku sendi Icelandair frá sér til­kynn­ingu þess efnis að félagið hefði hafið við­ræður við skulda­bréfa­út­gef­endur sína í ljósi þess að lægri rekstr­ar­hagn­aður félags­ins gæti mögu­lega gert það að verkum að það upp­fylli ekki fjár­hags­legar kvaðir varð­andi hlut­fall heildar vaxta­ber­andi skulda sem getið er í skil­málum skulda­bréfa Icelandair.

Við­ræð­urnar eru við full­trúa skulda­bréfa­eig­enda sem ráða yfir meira en 50 pró­sent af hinum útgefnu bréfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár