WOW air skylt að útvega annað flugfar til sömu borgar

Þór­hildur Elín­ar­dóttir, sam­skipta­stjóri Sam­göngu­stofu, segir WOW air ekki upp­fylla reglur um rétt­indi flug­far­þeg­anna með því að bjóða ekki far­þegum flug með öðru flug­fé­lagi.

Flug­vélið WOW air ber að bjóða far­þegum val um annað flug á áfanga­stað eða end­ur­greiðslu á far­miða vegna flugs til þeirra þriggja borga sem fyr­ir­tækið hefur nú ákveðið að aflýsa flugi til, þetta stað­festir Sam­göngu­stofu. Frá þessu er greint á RÚV.

Flug­fé­lagið til­kynnti á dög­unum að öll flug til Stokk­hólms, Edin­borgar og San Francisco í vetur, frá 5. nóv­em­ber fram í byrjun apríl, séu aflýst vegna hag­ræð­ingar í rekstri. Samkvæmt WOW air veldur seinkun á afhend­ingu tveggja nýrra Airbus A330neo vélum því að félagið þarf að gera breyt­ingar á leið­ar­kerfi félags­ins í vetur, vél­arnar áttu að koma í nóv­em­ber en koma nú ekki fyrr en í lok febr­úar. Í til­kynn­ing­unni kom einnig fram að far­þegum, sem hafi fjár­fest í flug­miðum til þess­ara borga, yrði boðið að fá end­ur­greitt eða að gera breyt­ingar á ferða­til­högun sinni án þess að greiða breyt­ing­ar­gjald.

Þór­hildur Elín­ar­dóttir, sam­skipta­stjóri Sam­göngu­stofu, segir í svari við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV, að með þessu sé ekki verið að upp­fylla reglur um rétt­indi flug­far­þeg­anna. Sam­göngu­stofa hefur meðal ann­ars eft­ir­lit með flug­rekstri á sinni könnu og útgáfu flug­rekstr­ar­leyfa. Samkvæmt Þórhildi kemur fram í 8. grein ESB reglu­gerðar 261/2006 að þegar flugi sé aflýst beri flug­fé­lagi að bjóða far­þega val um nýtt flug á loka ákvörð­un­ar­stað eða end­ur­greiðslu á far­miða. „Í þeim til­fellum þar sem félagið flýgur ekki sjálft lengur á við­kom­andi áfanga­stað þá þarf það að útvega far með öðrum flug­rek­anda,“ segir í Þór­hildur.

Ættu ekki að þurfa hætta við ferðina

Frétta­stofa RÚV greindi á dög­unum frá því að hjón sem höfðu keypt ferð til Edin­borgar með WOW air hefðu aðeins fengið end­ur­greitt flug­farið en ekki gist­ingu. Haft er eftir hjón­unum að að gist­ingin sé hins vegar mun kostn­að­ar­sam­ari en flug­farið og því mikið tap fyrir hjónin. Haft var eftir Svan­hvíti Frið­riks­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa WOW í frétt­inni að flug­fé­lagið ætli þó að gera sitt besta til að aðstoða þá far­þega sem keyptu gist­ingu í gegnum heima­síðu WOW við að fá gist­ing­una end­ur­greidda. Ef miðað er við ofan­greindar upp­lýs­ingar frá Sam­göngu­stofu þá ættu hjónin ekki að þurfa að hætta við ferð­ina, heldur fá boð frá WOW um flug til Edin­borgar með öðru flug­fé­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wowair

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár