WOW air aflýsir flugum

Flug­fé­lagið mun ekki fljúga til Stokk­hólms, Edin­borgar og San Francisco frá 5. nóv­em­ber næst­kom­andi til byrjun apríl á næsta ári.

WOW air mun ekki fljúga til Stokk­hólms, Edin­borgar og San Francisco yfir vetr­ar­mán­uð­ina og mun félagið aflýsa flugum frá 5. nóv­em­ber næst­kom­andi til byrjun apríl á næsta ári. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá WOW air.

[links]Í til­kynn­ing­unni segir jafn­fram að þessi ákvörðun hafi verið tekin með það að leið­ar­ljósi að ná fram auk­inni hag­ræð­ingu í rekstri félags­ins.

„Eins og þegar hefur komið fram verður seinkun á afhend­ingu á tveimur glæ­nýjum Airbus A330neo vélum sem áttu að koma í nóv­em­ber en koma núna ekki fyrr en í lok febr­úar. Fyrir vikið neyð­ist félagið til þess að gera breyt­ingar á leið­ar­kerfi félags­ins í vetur.“

Síðustu flug til Stokk­hólms, Edin­borgar og San Francisco verða 5. nóv­em­ber næst­kom­andi. Haft verður sam­band við alla far­þega sem eiga í hlut, þeim boðin end­ur­greiðsla eða að gera breyt­ingar á ferða­högun sinni án þess að greiða breyt­ing­ar­gjald.

Flug mun svo hefj­ast aftur til Stokk­hólms, Edin­borgar og San Francisco í byrjun apríl á næsta ári, segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár