WOW air greiðir hærri vexti en önnur flugfélög

Bloomberg segir að vext­irnir sem WOW air borgar vegna skulda­bréfa­út­gáfu sinnar séu hærri en vextir í útboðum ann­arra evr­ópskra flug­fé­laga sem farið hafa fram á síð­ustu árum.

Vext­irnir sem WOW air greiðir af skulda­bréfum sem fyr­ir­tækið ætlar að gefa út eru þeir hæstu sem nokk­urt flug­fé­lag í Evrópu greiðir, sam­kvæmt frétt Bloomberg.

Þar kemur fram að vaxta­kjörin í nýaf­stöðu skulda­bréfa­út­boði WOW air, sem eru níu pró­sent ofan á þriggja mán­aða Euribor vexti, séu hærri en vextir voru í útboðum hjá Air Berlin, Finnair,, Norwegian Air, Air France, British Airways og Luft­hansa sem ráð­ist hefur verið í á tíma­bil­inu 2013 til 2018.

Áður voru hæstu vextir sem evr­ópskt flug­fé­lag hafði sam­þykkt að greiða 8,5 pró­sent í útboði sem Air Berlin fór í árið 2017 þegar fyr­ir­tækið sótti 125 milljón evra með víkj­andi skulda­bréfa­út­gáfu. Air Berlin fór í greiðslu­stöðvun í ágúst í fyrra og hætti starf­semi 27. októ­ber 2017. Önnur flug­fé­lög sem gáfu út skulda­bréf á tíma­bil­inu greiða, sam­kvæmt frétt Bloomberg, 5,1 til 7,9 pró­sent vexti.

Greint var frá því á þriðju­dag að skulda­bréfa­út­boði WOW air væri lokið. Bók þess hafði þá verið opin frá því í lok ágúst. Í til­kynn­ingu kom fram að stærð skulda­bréfa­flokks­ins nemi 60 millj­ónum evra, þar af 50 millj­ónir evra sem þegar hafa verið seldar og 10 millj­ónir evra sem verða seldar fjár­festum í fram­haldi af útboð­inu.

Skulda­bréfa­flokk­ur­inn er til þriggja ára og vextir eru, líkt og áður sagði, níu pró­sent ofan á þriggja mána Euribor vexti, en þó aldrei lægri en níu pró­sent skyldu þeir vextir verða nei­kvæð­ir. Auk þess voru lagðar fram ábyrgðir sem eru ekki til­greindar sér­stak­lega.

Greint var frá því að þátt­tak­endur væru bæði inn­lendir og erlendir fjár­festar en ekki hefur verið greint frá því hverjir þeir eru.

WOW air hefur ráðið Arion banka og Arctica Finance til að hefja und­ir­bún­ing að skrán­ingu hluta­bréfa félags­ins innan 12-18 mán­aða, bæði hér­lendis og erlend­is. Arion banki er einnig á meðal kröfu­hafa WOW air. Bankinn vill ekki upp­lýsa um hvort að hann sjálfur, eða sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Stefnir, hafi tekið þátt í skulda­bréfa­út­boð­inu hjá WOW air.

Í við­tali við Financial Times sem birt­ist síð­ast­lið­inn mánu­dag sagði Skúli Mogensen að WOW air ætl­að­i að safna um 200 til 300 millj­­ónum doll­­ara, eða 22 til 33 millj­­örðum íslenskra króna, í nýtt hlutafé í hluta­fjár­­út­­­boði sem fyr­ir­tækið ætlar að ráð­­ast í á næstu tveimur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár