Ætlar að selja tæplega helminginn í WOW air

Skúli Mogensen segir WOW air ætla að safna um 200 til 300 millj­ónum doll­ara, eða 22 til 33 millj­örðum íslenskra króna, í nýtt hlutafé í hluta­fjár­út­boði sem fyr­ir­tækið ætlar að ráð­ast í á næstu tveimur árum.

Skúli Mogensen segir WOW air ætla að safna um 200 til 300 millj­ónum doll­ara, eða 22 til 33 millj­örðum íslenskra króna, í nýtt hlutafé í hluta­fjár­út­boði sem fyr­ir­tækið ætlar að ráð­ast í á næstu tveimur árum. Þetta segir Skúli, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, í sam­tali við Financial Times. Skúli ætlar að selja tæp­lega helm­ing fyr­ir­tæk­is­ins, án þess þó að nefna heild­ar­verð­mæti flug­fé­lags­ins.

[links]Financial Times greinir frá því að síð­ustu tvö rekstr­arár hafi reynst WOW air erf­ið­lega, fyri­tækið hafi tapað 26,5 millj­ónum doll­ara, eða þremur millj­örðum íslenskra króna, fyrir skatt í fyrra og gert ráð fyrir að tap þessa árs muni nema sex millj­ónum doll­ara eða um 600 millj­ónum króna. Vonast sé til þess að á næsta ári muni fyr­ir­tækið hins vegar skila hagn­aði.

Skúli segir að WOW air hafi ekki tek­ist að tak­marka kostnað félags­ins, hækkun elds­neyt­is­verðs hafi unnið gegn þeim og WOW sé ekki með varnir gegn hækk­unum sem hann vill end­ur­skoða. Í frétt Financial Times segir að olíu­verð hafi hækkað umtals­vert á liðnum mán­uðum, tunnan hafi verið á 92 doll­ara í lok ágúst og hækkað um 25 pró­sent á einum árs­fjórð­ungi. Önnur flug­fé­lög víðs vegar í heim­inum hafi hins vegar skilað met­hagn­aði árið 2017, þvert á stöð­una hjá WOW air.

WOW air sendi fyrir helgi frá sér til­kynn­ingu þar sem sagði að skulda­bréfa­út­boði félags­ins muni ljúka á morgun. Gefin verða út skulda­bréf fyrir minst 50 millj­ónir evra, eða rúma 6 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár