Af hverju skiptir olíuverðið svona miklu máli?

Af hverju hefur olíu­fram­leiðsla svona mikil áhrif á heims­hag­kerfið? Munu áhrif hennar aukast eða minnka í fram­tíð­inni og hvort yrði það gott eða slæmt fyrir okkur?

Ef litið er fram hjá fjár­mála­þjón­ustu hefur aðeins ein vara verið þess megnug að hafa komið af stað heimskreppu á síð­ustu ára­tugum: olía. Sömu­leiðis hefur fram­leiðsla þess­arar vöru einnig virkað sem lyfti­stöng fyrir ýmis lönd í langan tíma, til að mynda Ísland í núver­andi upp­sveiflu. Hvernig má það vera að þessi eina vara hafi svo mikið að segja í vel­sæld landa og hvernig mun hún hafa áhrif á heims­hag­kerfið á kom­andi miss­erum?

Í öllum stigum hagkerfisins

Í meg­in­at­riðum liggja tvær ástæður að baki þeim miklu svipt­ingum sem olían veldur í hag­kerfum ýmissa landa. Annars vegar er hún mik­il­væg fram­leiðslu á svo öðrum vörum og þjón­ustu og hins vegar er fram­leiðsla hennar tíma­frek.

Olía knýr áfram flest far­ar­tæki heims­ins og er því meg­in­uppi­staða í hvers kyns sam­göngum og flutn­ingum. Þar sem heims­hag­kerfið reiðir sig á fram­leiðslu á þjón­ustu og vörum sem eru fluttar um langar vega­lengdir nær því olíu­verð að hafa áhrif á verð þeirra flestra, hvort sem það eru inn­fluttir ban­anar frá Suður-Ameríku eða fiskur sem fluttur er úr landi með skipum og flug­vélum. Hækkandi verð á olíu myndi því skila sér í hærra verði á fiski og banönum og bitna á neyt­endum þeirra.

Ásamt þvi að hafa víð­tæk áhrif um allt hag­kerfið er olíu­verð bundið miklum sveiflum þar sem birgð­irnar eru af skornum skammti og erfitt er að breyta fram­leiðslu á henni til skamms tíma. Upp­setn­ing á brunnum og borpöllum kostar tíma og pen­ing, þannig að olíu­fyr­ir­tæki geta jafnan ekki brugð­ist skjótt við skyndi­legum breyt­ingum í eft­ir­spurn, til dæmis þegar stríð hefj­ast eða við­skipta­banni er komið á.

Þar sem olíu­fram­leiðslan er óbreytt til skamms tíma geta slíkar skyndi­breyt­ingar leitt til gríð­ar­legra sveiflna í verði. Þessar sveiflur skila sér svo í miklum verð­breyt­ingum á fjölda neyslu-og útflutn­ings­vara, en áhrif þess­arra verð­breyt­inga á hag­kerfi land­anna fara eftir því hvaða vörur þau flytja inn og út.

Ríkir græða og fátækir tapa á ódýrri olíu

Hægt er að sjá hversu næm lönd eru fyrir verð­breyt­ingum í olíu­verði með því að skoða inn-og útflutn­ing landa af olíu sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu. Þau lönd sem reiða sig mest á útflutn­ing olí­unnar eru gjarnan þró­un­ar­lönd og nýmark­aðs­ríki, en Brasilía, Suður-Súdan og lýð­veldið Kongó eru á toppi list­ans. Á hinn bóg­inn eru það helst smærri iðn­ríki sem reiða sig mest á inn­flutta olíu, líkt og Suður-Kórea, Singapúr og Litháen. Ef litið er til þeirra óbeinu áhrifa sem olía hefur á verð ann­arra vara verður mun­ur­inn enn skýr­ari, en þar fylgja allar inn­fluttar neyslu­vörur iðn­ríkj­anna einnig heims­mark­aðs­verði á olíu.

Þessi munur veldur miklu mis­ræmi í efna­hags­ár­angri ríkra og fátækra þjóða, en sýnt hefur verið fram á að verð­lækkun á olíu hagn­ist iðn­ríkjum á kostnað þró­un­ar­landa. Skýrasta dæmi um þetta er Ísland, en sú mikla lækkun sem varð á heims­mark­aðs­verði olíu árið 2014 hefur verið talin meg­in­á­stæða lágrar og stöðugrar verð­bólgu hér­lendis á síð­ustu árum.

Hættur sveiflunnar

Ekki er hins vegar lík­legt að olíu­verðið, sem enn er lægra en það var árið 2014, muni hald­ast lágt í fram­tíð­inni. Í augna­blik­inu ríkir mikil óvissa um áhrif yfir­vof­andi við­skipta­banns milli Írans og margra Vest­ur­landa, en bannið myndi að öllum lík­indum leiða til minni olíu­fram­leiðslu og þar af leið­andi hærra verðs. Ef litið er til langs tíma er einnig ljóst að olía er af skornum skammti í heim­inum og erf­ið­ara verður að fram­leiða hana á næstu árum og ára­tugum. Olíuverð mun því lík­lega fara hækk­andi í fram­tíð­inni, að öllu öðru óbreyttu, og leiða til hærra og óstöðugra verð­lags hjá hátekju­löndum.

Vegna eig­in­leika sinna er olían enn þess megnug að valda fjöl­þjóð­lega kreppu, annað hvort í þró­un­ar­löndum eða iðn­ríkjum, taki hún miklar sveiflur. Reynt hefur verið að draga úr þessum fjöl­þjóð­legu sveiflum á heims­vísu með olíu­sam­ráðs­hópnum OPEC, en yfir­lýst mark­mið hans er að við­halda stöð­ugu verð­lagi á olíu. Árangur OPEC er hins vegar umdeildur, en frá stofnun hóps­ins árið 1960 hefur heims­mark­aðs­verðið á olíu hald­ist óstöðugt og valdið mörgum efna­hag­skreppum.

Tvær flugur í einu höggi

Önnur leið til að draga úr kreppu­á­hrifum olíu­fram­leiðslu væri með því að draga úr vægi hennar í efna­hags­kerf­inu. Þar myndi aukin notkun ann­ars konar orku­gjafa fyrir far­ar­tæki vega hæst, en það er einmitteitt af mark­miðum núver­andi rík­is­stjórnar. Bann við notkun á einnota plast­pokum sem búnir eru til á olíu er einnig önnur leið til að draga úr eft­ir­spurn á olíu, en nú í vik­unni var til­kynnt að Nýja-Sjáland muni bæt­ast í hóp rúm­lega 40 landa sem hafa slíkt bann í gildi.

Þrátt fyrir að flestar þess­ara aðgerða eru fram­kvæmdar af lofts­lags-og umhverf­is­á­stæðum er ekki síður mik­il­vægt að gera sér grein fyrir efna­hags­legum ávinn­ingi af því að reiða sig minna á olíu. Minni notkun allra vara sem tengdar eru fram­leiðslu olí­unnar myndu því að öllum lík­indum slá tvær flugur í einu höggi: Plánetan yrði hreinni og heims­hag­kerfið stöðugra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár