Nýja-Sjáland mun banna plastpoka á næsta ári

Nýja-Sjáland mun bæt­ast í hóp landa sem banna notkun á einnota plast­pokum á næsta ári, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá for­sæt­is­ráð­herra lands­ins.

Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands
Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands Mynd: EPA

For­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands til­kynnti í gær bann á einnota plast­pokum sem hrint yrði í fram­kvæmd á næsta ári. Með laga­setn­ing­unni myndi landið bæt­ast í hóp yfir 40 landa víðs vegar um heim­inn sem bannað hafa plast­poka. Þetta kemur fram í frétt á vef The Guardian.

Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands, mun rík­is­stjórnin lög­festa bannið á næstu mán­uðum, en það yrði inn­leitt með sex mán­aða fyr­ir­vara svo smá­sölu­fyr­ir­tæki lands­ins geti und­ir­búið sig fyrir það. Að því tíma­bili loknu geti fyr­ir­tæki átt yfir höfði sér sektir sem næmu allt að 7 millj­ónum íslenskra króna, fylgi þau bann­inu ekki eftir.

„Á hverju ári notar Nýja-Sjáland hund­ruðir millj­óna einnota plast­poka. Heilt fjall af plast­pokum, margir hverjir sem enda á því að menga okkar dýr­mæta strand­ar­um­hverfi og valdið alls konar sjáv­ar­lífi alvar­legum skaða, þegar aðrir fýsi­legir val­kostir eru í boði fyrir neyt­endur og fyr­ir­tæki,“ sagði Ardern í til­kynn­ingu sinni.

Samkvæmt frétt The Guardian er rusl­fram­leiðsla Nýja-Sjálands á höfða­tölu einna hæst meðal iðn­ríkja, þar sem um 750 millj­ónir einnota plast­poka eru not­aðar á hverju ári. Það sam­svarar um rúm­lega 150 plast­pokum á hverjum íbúa á hverju ári.

Alls hafa meira en 40 lönd kynnt plast­poka­bann í ein­hverri mynd ,en fyrst þeirra var Bangla­desh árið sem kynnti það árið 2002. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins til­kynnti svo í lok maí til­lögu um bann á einnota plast­vörum, en til­lagan myndi einnig ná til plast­flaskna og sogröra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár