Tekjuviðmiðum fyrir gjafsóknir breytt

Breyt­ingin felur í sér hækkun við­mið­un­ar­fjár­hæða gjaf­sóknar. Þannig mega tekjur ein­stak­lings ekki nema hærri fjár­hæð en 3,6 millj­óna í stað 2 millj­óna áður. Sama upp­hæð fyrir hjón eða sam­búð­ar­fólk hækkar úr 3 millj­ónum í 5,4 millj­ónir.

Um mán­að­ar­mótin síð­ast­liðin tók í gildi reglu­gerð dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingu á skil­yrðum og starfs­hætti gjaf­sókn­ar­nefndar en reglur um gjaf­sókn segja til um í hvaða til­vikum kostn­aður við dóms­mál ein­stak­lings er greitt úr rík­is­sjóði.

Breyt­ingin felur í sér hækkun við­mið­un­ar­fjár­hæða gjaf­sóknar. Þannig mun við mat á því hvort veita skuli ein­stak­lingi gjaf­sókn fram­vegis miða við að tekjur hans nemi ekki hærri fjár­hæð en kr. 3.600.000 í stað kr. 2.000.000 áður. Sama upp­hæð fyrir hjón eða sam­búð­ar­fólk hækkar úr kr. 3.000.000 í kr. 5.400.000. Þá skulu við­mið­un­ar­mörk tekna hækka um kr. 400.000 fyrir hvert barn á fram­færi umsækj­anda í stað kr. 250.000 áður. Loks er kveðið á um það í reglu­gerð­inni að fram­an­greindar fjár­hæðir taki breyt­ingum miðað við vísi­tölu neyslu­verðs 1. jan­úar ár hvert.

Af hverju skiptir þetta máli?

Lágar fjár­hæðir í reglum um gjaf­sókn hafa lengi verið gagn­rýndar. Ragnar Aðal­steins­son lög­maður segir til dæmis í nýlegu við­tali við Stundina að gjaf­sókn­ar­kerfið sé ónýtt. „Við hér á stof­unni höfum fengið til okkar fólk sem hefur viljað áfrýja málum sem það hefur tapað í í hér­aði, fólk sem ekki hefur getað borgað neitt. Við höfum þá sótt um gjaf­sókn fyrir það en fengið neitun með þeim rök­semdum að hér­aðs­dóm­ur­inn sé svo góður, það þurfi ekki að áfrýja mál­inu. Það er hins vegar ekki gjaf­sókn­ar­nefndar að taka afstöðu til þess en þeir telja að svo sé. Þá höfum við þurft að áfrýja mál­inu á okkar kostnað og á okkar áhættu. Við höfum hins vegar unnið slík mál, fleiri en eitt og fleiri en tvö. Svo má líka nefna að tekju­við­miðin sem lögð eru fyrir gjaf­sókn eru langt neðan við allt og meira að segja hafa ráð­herrar sett reglu­gerðir sem tak­marka slíkt enn frekar.“

Ragnar sagði þetta standa rétt­ar­rík­inu fyrir þrifum, það er þeim hluta borg­ar­anna sem höllustum fæti stendur í sam­fé­lag­inu. Erfitt sé að kom­ast fyrir dóm­stóla með rétt­inda­mál almenn­ings, því það sé alltof dýrt og mögu­leik­inn á gjaf­sókn oft lít­ill sem eng­inn.

Í lögum um með­ferð einka­mála segir að gjaf­sókn verði aðeins veitt ef mál­staður umsækj­anda gefi nægi­legt til­efni til máls­höfð­unar eða málsvarnar og öðru hvoru eft­ir­far­andi skil­yrða er að auki full­nægt:

a. að fjár­hag umsækj­anda sé þannig háttað að kostn­aður af gæslu hags­muna hans í máli yrði honum fyr­ir­sjá­an­lega ofviða, enda megi telj­ast eðli­legt að öðru leyti að gjaf­sókn sé kostuð af almannafé,

b. að úrlausn máls hafi veru­lega almenna þýð­ingu eða varði veru­lega miklu fyrir atvinnu, félags­lega stöðu eða aðra einka­hagi umsækj­anda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár