SAS aflýsir 65 flugum

Flug­fé­lagið Scandinavian Airlines segir verk­föll flug­um­ferð­ar­stjóra, skort á flug­mönnum og lélegt skipu­lag vera ástæður fjöl­margra aflýs­inga á flug­ferðum sínum.

Sumarið hjá SAS hefur ekki farið eins flugfélagið gerði ráð fyrir
Sumarið hjá SAS hefur ekki farið eins flug­fé­lagið gerði ráð fyrir Mynd: Úr safni.

Skand­in­av­íska flug­fé­lagið SAS aflýsti 25 flug­ferðum um helg­ina og hefur ákveðið að aflýsta 40 til við­bótar í vik­unni, að eigin sögn vegna verk­falla, flug­manna­skorts og lélegs skipu­lags. Þetta kemur fyrst fram í fréttum á ýmsum skand­in­av­ískum frétta­miðlum.

Sænski rík­is­mið­ill­inn SVT fjall­aði einnig um málið, en sam­kvæmt henni hefur Facebook-síða flug­fé­lags­ins fyllst af reiðum athuga­semdum frá far­þegum aflýstu flug­anna. Þar segj­ast far­þeg­arnir ekki hafa fengið nein úrræði eða útskýr­ingar á aflýs­ing­unum, en þær hafi allar verið til­kynntar með stuttum fyr­ir­vara.

Í við­tali við Dagens Nær­ingsliv segir rekstr­ar­stjóri SAS, Lars Sandahl Sørensen, lélegt skipu­lag og skort á flug­mönnum vera aðal­á­stæður aflýs­ing­anna. Einnig segir hann flug­fé­lagið hafa verið „allt of metn­að­ar­fullt“ í sumar.

Tonje Sund, fjöl­miðla­full­trúi félags­ins er sama sinnis: „Í stuttu máli sagt erum við á miðjum háanna­tíma á sama tíma sem við verðum fyrir mörgum vanda­málum. Þetta er blanda af tænki­legum vanda­málum, flug­manna­skorts í Evrópu, verk­falls flug­um­ferð­ar­stjóra og keðju­á­hrif vegna aflýs­inga ann­arra flug­ferða í okkar neti,“ segir Tonje í sam­tali við Dagens Nyheter.

Jacob Pedersen, grein­ing­ar­að­ili flug­geirans hjá Sydbank segir einnig í sömu frétt að þessir þættir hafa áhrif á önnur flug­fé­lög í Evrópu. „Þegar um ræðir aflýstar flug­ferðir, þá er það meiri spurn­ing um hvað sé í gangi í Evrópu. Verkföll flug­um­ferð­ar­stjóra í Frakk­landi ásamt skorti á flug­mönnum í Grikk­landi og Þýska­landi hefur leitt til kvart­ana meðal allra flug­fé­laga í Evrópu.“

Kjarninn hefur áður fjallað um verk­föll flug­um­ferð­ar­stjóra í Evrópu í ár, en þau eru talin hafa valdið sein­k­unum eða aflýs­ingum á flugum fyrir millj­ónir far­þega um alla álf­una. For­stjóri Ryanair, Michael O'Leary, kall­aði þá „verstu skúrk­ana“ í kjara­bar­áttu starfs­fólks í geir­anum og hags­muna­sam­tök flug­fé­laga hafa einnig sent frá sér til­kynn­ingu um alla Evrópu þar sem lýst er yfir áhyggjum af því fjár­hagstjóni sem verk­föllin kunna að hafa í för með sér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár