Er tollastríðinu lokið?

Miklar vonir eru bundnar við sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins um frestun á frek­ari tollum og sam­vinnu í átt að lægri tollam­úrum. Sér­fræð­ingar vara þó við að tolla­stríð­inu sé ekki enn lokið, þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit.

Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins
Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmd­ar­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins Mynd: EPA

Sam­eig­in­leg yfir­lýs­ing Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta og Jean-Claude Juncker for­seta fram­kvæmd­ar­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins um frestun á bíla­tollum og byrjun á samn­inga­við­ræðum kom mörgum í opna skjöldu í gær. Hluta­bréfa­verð í evr­ópskum fyr­ir­tækjum hækk­aði í kjöl­far yfir­lýs­ing­ar­innar, en nokkrir sér­fræð­ingar telja þó ekki ástæðu til að fagna enda­lok­unum alveg strax.

Bílatollum frestað

[links]Eftir heim­sókn fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins til Hvíta húss­ins í Washington í gær birtu Trump og Juncker sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu með litlum fyr­ir­vara til fjöl­miðla um óvænt sam­starf milli ríkja­sam­band­anna.

Samkvæmt yfir­lýs­ing­unni, sem New York Times greindi frá, mun Evr­ópu­sam­bandið lækka tolla sína gagn­vart Banda­ríkj­unum og kaupa soja­baunir og jarð­gas í stórum stíl, en Banda­ríkin myndu fresta fyr­ir­hug­aða tolla­lagn­ingu sína á inn­flutta bíla. Þar að auki höfðu báðir aðilar sett saman starfs­hóp með það að mark­miði að afleggja yfir­stand­andi tolla Banda­ríkj­anna á áli og stáli.

Kjarninn greindi frá því í gær að við­skipta­full­trúi ESB, Cecilia Malm­ström, sagði sam­bandið vera til­búið að leggja enn frek­ari tolla á banda­rískar útflutn­ings­vörur, fari svo að tollar á bíla­inn­flutn­ingi verði hækk­aðir Vest­an­hafs. Evr­ópu­sam­bandið væri hins vegar frekar til í að lægja öldur í við­skipta­stríð­inu við Banda­ríkin og sagði Cecilia að með sam­vinnu gætu báðir aðilar til dæmis beint sjónum sínum að óásætt­an­legum við­skipta­háttum Kínverja.

Yfir­lýs­ingin kom mörgum í opna skjöldu, en fyrir fund­inn sagð­ist Juncker ekki búast við að heim­sókn sín myndi skila miklum árangri. Hún virð­ist samt hafa sann­fært marga alþjóða­fjár­festa, en sam­kvæmt frétta­stofu Reuters náði hluta­bréfa­verð evr­ópskra fyr­ir­tækja fjög­urra mán­aða hámarki í kjöl­far til­kynn­ing­ar­innar, og þá sér­stak­lega þýskir bíla­fram­leið­endur.

Stríðinu ekki lokið

Á hinn bóg­inn eru ekki allir sann­færðir um gildi yfir­lýs­ing­ar­innar, en norskir sér­fræð­ingar segja óvissu í kringum tolla­stríðið vera vissu­lega enn til staðar. Kjersti Haugland, yfir­hag­fræð­ingur DNB Markets, segirí við­tali við Dagens Nær­ingsliv mark­aðs­að­ila verða að vera við­búin nýju útspili öðrum hvorum megin við Atl­ants­hafið sem aftur gæti skekkt stöð­una. Joachim Bern­hard­sen, hag­fræð­ingur í Nordea, tekur í sama streng og segir Banda­ríkja­for­seta vera óút­reikn­an­legan. Hann vilji lík­lega lækka tollam­úra beggja ríkja­sam­band­anna, en sam­kvæmt Joachim er tolla­stríð­inu þó alls ekki lokið enn. „Þetta mun hafa bæði nei­kvæðar og jákvæðar afleið­ingar á mark­að­inn,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár