ESB tilbúið að leggja frekari tolla á Bandaríkin

Evr­ópu­sam­bandið hefur sett saman lista yfir banda­rískar vörur sem það hyggst leggja toll á fari svo að Banda­ríkin leggi toll á bíla­inn­flutn­ing. Tollar Evr­ópu­sam­bands­ins myndu nema um 20 millj­örðum Banda­ríkja­dala.

Cecilia Malmström, viðskiptafulltrúi Evrópusambandsins
Cecilia Malm­ström, við­skipta­full­trúi Evr­ópu­sam­bands­ins Mynd: EPA

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hyggst leggja á tolla á fleiri banda­rískar inn­flutn­ings­vörur að and­virði 20 millj­arða Banda­ríkja­dala, fari svo að Banda­ríkin tolla­leggi inn­flutta bíla. Þetta sagði við­skipta­full­trúi sam­bands­ins, Cecilia Malm­ström í við­tali við sænska blaðið Dagens Nyheter í morgun.

Ummæli Ceciliu koma rétt fyrir áætl­aðan fund Banda­ríkja­for­seta Donald Trump við hana og for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, Jean-Claude Juncker í Hvíta hús­inu seinna í dag. Samkvæmt henni er mark­mið fund­ar­ins að lægja öldur í við­skipta­stríði milli Banda­ríkj­anna og Evrópu, og þá helst að koma í veg fyrir að tollar verði settir á bíla­inn­flutn­ing Vest­han­hafs. Í við­tali sínu við Dagens Nyheter segir Cecilia slíka tolla myndu verða mikið áfall fyrir sænskan efna­hag og allan heim­inn.[adspot]

Fyrir rúmum mán­uði síðan hót­aði Donald Trump Evr­ópu­sam­band­inu að inn­leiða 20% toll á evr­ópska bíla sem fluttir eru inn til Banda­ríkj­anna. Í Twitter-færslu sinni, sagð­ist Trump munu setja á toll­inn ef Evr­ópu­sam­bandið dregur ekki tolla­lagn­ingu sína til baka. Færsluna má sjá hér að neðan.

20 milljarða dala tollar

Samkvæmt Ceciliu myndu slíkir tollar leggj­ast hart á sænska bíla­fram­leið­endur líkt og Volvo og Scania, en einnig hefðu þeir geig­væn­leg áhrif á banda­ríska bíla­iðn­að­inn. Jafn­framt segir hún að sam­bandið hafi nú þegar sett saman lista yfir banda­rískar vörur sem það hyggst leggja toll á, ef bíla­toll­arnir verða að veru­leika. Fyr­ir­hug­aðir tollar Evr­ópu­sam­bands­ins yrðu að and­virði 20 millj­arða Banda­ríkja­dala.

Aðspurð um hvers konar vörur þetta eru, segir Cecilia þær fyrst og fremst vera land­bún­að­ar­af­urðir og véla­bún­aður auk ann­arra vara sem dreif­ist frekar jafnt á öll aðild­ar­ríki sam­bands­ins.

Sammála um Kína

Cecilia sagð­ist þó ekki vera líta á Banda­ríkin sem and­stæð­ing: „Við þekkjum ekki aðra taktík en sam­ræður. Við ætlum að útskýra að ESB er ekki and­stæð­ingur, heldur vinur og banda­maður. Við og Banda­ríkin deilum þeirri sýn að Alþjóða­við­skipta­stofn­unin þurfi að nútíma­væð­ast.“ Sem dæmi nefnir að báðir aðilar séu sam­mála því að Kína raski alheims­mark­aðnum á stáli með því að nið­ur­greiða óarð­bær rík­is­fyr­ir­tæki og farga umfram­fram­leiðslu.

„En í stað­inn fyrir að beina sjónum sínum að Evrópu og segja að við séum ógn við þeirra innra öryggi, getum við tek­ist saman á þessi vanda­mál á heims­vísu,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár