Frakkar heimsmeistarar - Öruggur sigur á Króatíu

Heims­meist­ar­mót­inu í knatt­spyrnu karla í Rúss­landi er lokið eftir sann­fær­andi sigur franska lands­liðs­ins á því króat­íska í úrslita­leiknum 4-2.

Frakkar eru heims­meist­arar í knatt­spyrnu karla eftir að hafa unnið lið Króata 4-2 í úrslita­leik í Rúss­landi rétt í þessu. Leik­ur­inn var hin mesta skemmtun, inni­hélt flott til­þrif, mikil mis­tök, víta­spyrnu og spennu.

[links]Sigur Frakk­anna var þó sann­fær­andi. Þeir voru 2-1 yfir í hálf­leik og komust mest í 4-1 í seinni hálf­leik. Króat­arnir gáfu allt sem þeir áttu, en voru þó alltaf skrefi á eftir Frökk­unum. Má vera að sú erf­iða leið sem þeir þurftu að fara að þessum leik í útslátt­ar­keppn­inni, þar sem þeir spil­uðu þrjá fram­lengda leiki, sam­tals 450 mín­útur af fót­bolta síðan 1. júlí.

Mörk Frakk­anna skor­uðu:

Mario Mandžukic (18')

Antoine Griezmann (38')

Paul Pogba (59')

Kylian Mbappé (65')

Mörk Króatanna skor­uðu:

Ivan Perišic (28')

Mario Mandžukic (69')

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár