Fer fótboltinn „heim“ til Englands eða eru allir að vanmeta Króatana?

England mætir Króatíu í dag seinni und­an­úr­slita­leik heims­meist­ara­móts­ins. Frakkar tryggðu sér sæti í úrslita­leiknum í gær með 1-0 sigri á Belgíu.

England mætir Króatíu í dag seinni und­an­úr­slita­leik heims­meist­ara­móts­ins. Frakkar tryggðu sér sæti í úrslita­leiknum í gær með 1-0 sigri á Belgíu.

[links]Leik­ur­inn er sá þriðji sem England spilar í und­an­úr­slitum á heims­meist­ara­móti, en þjóðin hefur einu sinni unnið, árið 1966. Þetta er í annað sinn sem Króatar kom­ast í und­an­úr­slitin, fyrra skiptið var árið 1998, fyrir sléttum tutt­ugu árum, þegar þeir töp­uðu 2-1 fyrir Frökkum sem urðu á end­anum heims­meist­arar. Gera má ráð fyrir að þá langi gjarnan að mæta Frökk­unum í úrslit­unum til að hefna þeirra harma.

Leik­ur­inn í dag er sá átt­undi á milli þjóð­anna en sá fyrsti á heims­meist­ara­móti. England hefur unnið fjóra leiki, Króatía tvo og einu sinni hafa liðin gert jafn­tefli. Liðin hafa mæst einu sinni á stór­móti. Það var á EM 2004 og vann England leik­inn með fjórum mörkum gegn tveimur.

Krótara hafa skorað níu mörk liðs­ins á mót­inu til þessa. Aðeins Luka Modrić hefur skorað meira en eitt mark en hjá Eng­lend­ingum er Harry Kane marka­hæstur, með sex mörk og er sem stendur marka­kóngur móts­ins. Enginn enskur leik­maður hefur skorað meira á heims­meist­ara­móti en Gary Lineker skor­aði einnig sex mörk árið 1986. Lineker var marka­hæstur það árið og fékk að launum gull­skó­inn. Átta af 11 mörkum Englands á mót­inu hafa komið eftir föst leikatriði (þrjú víti, fjórar horn­spyrnur og ein auka­spyrna).

Króatar voru eins og allir vita með Íslend­ingum í riðli. Þeir spil­uðu vel í riðl­inum en hafa ekki sýnt eins sterka frammi­stöðu í útslátt­ar­keppn­inni. Eng­lend­ingar aftur á móti hafa vaxið eftir því sem liðið hefur á mótið. Stemmn­ingin í Englandi er gríð­ar­leg um þessar mundir og virð­ist jákvæð­ari í garð liðs­ins en verið hefur á síð­ustu stór­mótum.

Leik­ur­inn er sýndur í beinni útsend­ingu á RÚV klukkan sex í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár