Besti árangur Belga sem taka bronsið heim af HM

Belgar unnu Eng­lend­inga í leik um þriðja sætið á heims­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu í Rúss­landi í dag. Eng­lend­ingar áttu aldrei mögu­leika á sigri.

Lið Belgíu og Englands mætt­ust í leik um þriðja sæti heims­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu í Pét­urs­borg í Rúss­landi í dag. Leiknum lauk með sigri Belga sem skor­uðu tvö mörk á móti engu frá Eng­lend­ingum.

Bak­vörð­ur­inn Thomas Munier kom Belgum yfir strax á fjórðu mín­útu eftir fyr­ir­gjöf frá Nacer Chadli. Eden Hazard rak svo smiðs­höggið þegar hann skor­aði á 82. mín­útu og verð­launa­sæti í höfn hjá Belgum.

Þetta er besti árangur liðs­ins sem lenti árið 1986 í fjórða sæti þegar það tap­aði 4-3 fyrir Frökkum í fram­lengdum brons­leik.

Enska liðið var aldrei lík­legt í leiknum og virt­ist áhuga­laust allan leik­inn. Spennan hjá lið­inu var og er helst í kringum fram­herj­ann Harry Kane, sem er enn marka­hæsti leik­maður móts­ins. Leik­maður Belga, Romelu Lukaku, er með fjögur mörk en náði ekki að fjölga þeim í leik dags­ins. Frönsku leik­menn­irnir Antoine Griezmann og Kylian Mbappe sem spila til úrslita á morgun eru með þrjú mörk og gætu tækni­lega séð slegið Kane út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár