Stóra stundin runnin upp - Hverjir eru bestir í heimi?

Úrslita­leikur heims­meist­ar­móts­ins í knatt­spyrnu fer fram í dag þegar Frakkar mæta þreyttum Króötum.

Úrslita­leikur heims­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu í Rúss­landi fer fram í dag klukkan 15 þegar Frakkar mæta liði Króata. Þegar þessi tvö lið mæt­ast verður það i fyrsta skipti síðan 1930 að lið í úrslitum mæti ekki Brasilíu og Þýska­landi.

[links]Franska liðið er reynd­ara en hið króat­íska í þessum aðstæðum. Þetta er þriðji úrslita­leik­ur­inn á heims­meist­ara­móti sem liði spilar og Frakkar urðu heims­meist­arar á heima­velli árið 1998 en töp­uðu fyrir Ítalíu í úrslitum 2006.

Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem Króatía kemst í úrslita­leik­inn. Liðið hlýtur að vera þreytt. Það hefur farið löngu leið­ina að þessum leik. Í 16-liða úrslit­unum unnu þeir Danmörku í víta­spyrnu­keppni, eins í 8-liða úrslit­unum gegn Rúss­landi og í und­an­úr­slit­unum unnu þeir England eftir fram­leng­ingu. Króatía hefur þannig farið í gegnum þrjár fram­leng­ingar í röð, sam­tals 360 mín­útur af fót­bolta síðan 1. júlí.

En Zlatko Dalic þjálf­ari liðs­ins hefur ekki áhyggjur. Króta­íska lands­liðið spilar í dag sinn stærsta leik í sög­unni og hann segir að leik­menn­irnir geri sér grein fyrir því. Þeir viti hvað er í húfi og hversu frá­bær stund þetta verður. Hver og einn leik­maður muni segja honum ef hann getur ekki lagt sig 100% fram. Eitthvað hefur verið um lít­ils­háttar meiðsli hjá leik­mönnum Króatíu.

Liðin tvö hafa mæst fimm sinnum áður, tvö jafn­tefli hafa verið nið­ur­staða þeirra leikja og Frakk­land unnið þrisvar.

Frakk­ar hafa unnið fimm leiki og gert eitt jafn­tefli gegn Dan­mörku í riðla­keppn­inni. Króat­ar hafa unnið alla leiki sína á mót­inu, þar á meðal leik sinn í riðla­keppn­inni gegn Íslandi.

Frakk­ar eru af flest­um tald­ir sig­ur­strang­legri enda með feikna­sterkt lið, með mikla breidd og mik­inn aga. Sem dæmi má nefna að stór­stjarnan Karim Benzema komst ekki í hóp­inn á þessu sinni.

Aga liðs­ins má vel sjá í spila­mennsk­unni, þar sem það tekur lítið af áhættum heldur leggja upp fyrir ein­stak­lings­fram­tak þegar slíkt hentar.

Ef að Didier Deschamps þjálf­ara liðs­ins tekst að stýra Frökk­um til sig­urs á eftir verður hann þriðji maður­inn í sög­unni til þess að verða heims­meist­ari sem leik­maður og þjálf­ari. Hinir tveir eru þeir Mario Zagallo og Franz Becken­bau­er.

Síðustu tveir úrslita­leikir HM hafa farið 1-0 og kom sig­ur­mark þeirra beggja í fram­leng­ingu. Spánn vann Holland 1-0 árið 2010 og Þýska­land vann Argent­ínu 1-0 árið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár