Króatar mæta Frökkum í úrslitaleik HM

Króatar unnu fræk­inn sigur á sterku liði Eng­lend­inga í seinni und­an­úr­slita­leik heims­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu í kvöld. Gríð­ar­leg von­brigði á Englandi en Króat­arnir hafa farið löngu leið­ina í öllum útslátt­ar­leikj­unum, með fram­leng­ingu í hverjum leik.

Króatar unnu Eng­lend­inga í fram­lengdum afar spenn­andi und­an­úr­slita­leik í kvöld, 2-1. Þeir munu mæta liði Frakk­lands í úrslita­leiknum á sunnu­dag. Eng­lend­ingar sem sitja eftir með sárt ennið munu spila upp á bronsið gegn Belgum á laug­ar­dag.

[links]Sigur Króata er sögu­legur en þjóðin hefur aldrei kom­ist svo langt á heims­meist­ara­móti. Leik­ur­inn í kvöld var í annað sinn sem þeir kom­ast í und­an­úr­slit­in, fyrra skiptið var árið 1998, fyrir sléttum tutt­ugu árum, þegar þeir töp­uðu 2-1 fyrir Frökkum sem urðu á end­anum heims­meist­ar­ar. Liðið hefur því harma að hefna á sunnu­dag­inn.

Eftir sterka byrjun hjá Eng­lend­ingum sem komust yfir á fimmtu mín­útu með sér­lega flottu marki úr auka­spyrnu frá Trippier var leik­ur­inn frekar rólegur og nokkuð jafn þar sem bæði lið fengu góð tæki­færi til að skora.

Króatar voru síðan mun sterk­ari í seinni hálf­leik og náðu að jafna á 68. mín­útu með marki frá Ivan Perisic.

Leik­ur­inn fór síðan í fram­leng­ingu, en allir leikir Króatíu hingað til í útslátt­ar­keppni móts­ins, þ.e. bæði sextán liða úrslitin og átta liða, hafa endað með fram­leng­ingum. Í hinum leikj­unum þurfti þó að grípa til víta­spyrnu­keppna en þess þurfti ekki í kvöld þar sem hetja Króata, fram­herj­inn Mario Mandzukic, náði að setja bolt­ann í netið í seinni hálf­leik fram­leng­ing­ar­innar.

Eng­lend­ingar sóttu af miklum krafti en án árang­urs og þurfa víst að bíða í fjögur ár í við­bót eftir að fót­bolt­inn komi „heim“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár